samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í rauninni skil ég hana mjög vel. Hins vegar er alger ógjörningur að sjá það fyrir hvernig mál munu dæmast ef til kemur í fyllingu tímans. Þannig að þetta eru aukin réttindi hvað lýtur að því þegar dómstólar fara að dæma í málunum. Eða erum við ekki eins og ég vil skilja það, eftir að við fullgildum þennan samning, einmitt að tryggja að réttindi þeirra sem um ræðir, fatlaðs fólks í þessu tilviki, verði skilyrðislaust lögfest og réttur þeirra tryggður samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Að öðru leyti tel ég, hv. þingmaður, að í raun sé ógjörningur að sjá fyrir hver þróunin verður í dómaframkvæmdum og öðru slíku þegar og ef kemur til slíkra framkvæmda.