157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort einhver vinna samhliða þessari lögfestingu á þessu þingskjali hafi átt sér stað inni í ráðuneytinu til þess mögulega að létta á og liðka fyrir og auðvelda uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk. Í þessu tilfelli vísa ég sérstaklega í 3. mgr. 3. gr. reglugerðar um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, nr. 370/2016, en þar er talað um að séu nokkrar íbúðir saman í fjölbýlishúsi skuli miðast við að fjöldi samliggjandi íbúða á hæð eða stigagangi sé ekki fleiri en sex og að hámarki tíu í sama húsi.

Virðulegur forseti. Það sem ég vísa í hér er reglugerð sem byggir á lögunum sem hæstv. ráðherra vísar í um húsnæði fatlaðs fólks. Ég get samt ekki séð beina tilvísun í lögunum sem slíkum og ég sé ekki alveg ástæðu til þess að framkvæmdarvaldið sé að setja svo stífar reglugerðir varðandi þessa uppbyggingu þegar við vitum einmitt hve (Forseti hringir.) ofboðslega mikil þörf er á fjölbreyttum og góðum búsetuúrræðum fyrir fatlaða einstaklinga. Þess vegna langar mig að vita hvort hæstv. ráðherra hafi skoðað þetta og látið skoða það eitthvað í ráðuneytinu hvort hægt væri að koma til móts við þessi sjónarmið með því að létta á þessari reglugerð.