samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir síðari fyrirspurn sem er í rauninni mjög góð og eiginlega upplýsandi fyrir þann ráðherra sem hér stendur, þannig að ég mun sannarlega skoða þessa reglugerð með þeim augum að athuga hvað við getum gert til að liðka til. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um það sem t.d. lýtur að þeim búsetukjörnum sem ég hef kannast við, eins og sérstaklega sambýlum fyrir geðfatlað fólk og álíka þar sem fólk hefur verið tekið út úr aðstæðum sínum og sumt hvert í raun sett í aðstæður sem því hefur liðið illa með. En auðvitað munum við reyna að sníða stakkinn eftir þörfum hvers og eins. Það er draumur okkar allra. Þannig að ég þakka aftur hv. þingmanni. Þetta var frábær fyrirspurn og þessi ráðherra allur uppveðraður af því að skoða þetta betur.