157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:06]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég held að ég geti ekki verið skýrari en þegar ég segi að þau réttindi sem fatlað fólk fær með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks eru nákvæmlega þau réttindi sem standa þeim til boða samkvæmt þessum samningi. Það hlýtur að vera samkvæmt orðanna hljóðan að verða að túlka samninginn nákvæmlega eftir því sem í honum stendur. En ég tek undir með hv. þingmanni þegar hún talar um þetta ástand sem ég hef svo sem heyrt af en er ekki á mínum höndum varðandi stafrænt aðgengi ungra. Það hefur frekar verið persónuvernd og ýmislegt annað því að þessi ungmenni hafa þurft á aðstoð annarra að halda til þess oft að komast í Auðkennisapp og annað slíkt. Þau hafa því miður verið það fötluð mörg hver að þau hafa ekki getað gert þetta hjálparlaust. Það hafa því komið alls konar vafningar og skringilegheit í kringum þetta vegna persónuverndar og annað. Ég get glatt hv. þingmann með því að þetta er í virkilegri skoðun akkúrat núna í samráði og samtali við alla hagaðila sem að málinu koma og ég vænti hins besta hvað lýtur að því máli.