157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:19]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er nú bara þannig að í samningnum er mælt fyrir efnislegum réttindum og skyldum á hendur aðildarríkjunum. Þetta eru ekki einhver almenn markmið sem eru undirorpin einhverri sérstakri túlkun umfram bara venjulega löggjöf sem er samþykkt hér á þingi. Það er vissulega svo að ákvæði samningsins hafa áhrif á réttindi borgaranna. Það er kannski það sem við höfum verið að ræða hingað til. Ég ítreka að þessar umræður hér í þingsal um 12. gr. er varðar nýtingu löghæfis og gerhæfis eru ágætar í dæmaskyni því að þetta er tiltölulega einfalt og skýrt. Það er enginn, held ég, ágreiningur á milli þeirra sem hafa unnið að þessum málum um að núgildandi lögræðislöggjöf er ekki í samræmi við 12. gr. og er þess vegna nú þegar ekki í samræmi við þær skyldur sem íslenska ríkið hefur undirgengist með fullgildingu. Með lögfestingu samningsins hins vegar þá geta borgararnir, þar með talið auðvitað fatlað fólk sem vill fá að njóta löghæfis, vill geta stundað sín viðskipti við hið opinbera, hvort heldur er með rafrænum skilríkjum eða öðrum skilríkjum með öðrum hætti, með vísan í þetta ákvæði byggt á því rétt og þá erum við komin í þá stöðu að lögræðislögin og lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks rekast á.