157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:25]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og ég fagna því að þessi samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé lögfestur. Það er í raun löngu tímabært að þessi réttindi séu ekki einungis orð á blaði heldur fullgild réttarheimild sem hefur raunveruleg áhrif á líf fólks. Þetta er alvörumál, þetta hefði þurft að undirbúa vel og þetta skiptir fullt af fólki miklu máli.

Við viljum öll að fatlað fólk njóti mannréttinda til jafns við aðra, á borði en ekki bara í orði, en við berum líka ábyrgð á að semja vönduð frumvörp og lög. Þess vegna hefði verið gott í þessu tilfelli að kíkja til nágrannalanda okkar eftir því hvernig þetta hefur verið gert þar. Hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson benti á að Norðmenn hefðu farið ágætisleið við að meta áhrif lögfestingarinnar. Það var ekki gert hér og hefur hæstv. ráðherra ekki kynnt sér sambærilega löggjöf í nágrannalöndunum, sem er ekki gott. Almennt ættum við að hafa þá auðmýkt í okkur að nýta vinnu nágranna okkar sem oft er sambærileg því sem við myndum gera hér á landi.

Í greinargerð með frumvarpinu er sagt að ekki sé gert ráð fyrir áhrifum á fjárhag sveitarfélaga þar sem lögfestingin feli ekki í sér ný efnisréttindi. Samt á hún að auka réttaráhrif og styrkja réttindi fatlaðs fólks. Þarna fara ekki hljóð og mynd saman. Ef við styrkjum réttindi hlýtur það að kalla á meiri þjónustu og þar með auknar skyldur sveitarfélaganna. Vonandi að Jónsmessunefndin, sem er nefnd sem ríki og sveitarfélög eiga sameiginlega aðkomu að, kasti þessum bolta ekki sín á milli eins og gerist stundum. Þá dugar ekki að segja að við ætlum að gera okkar besta eða brosa okkur í gegnum málin. Ef fatlað fólk hefur ekki aðgang að réttu húsnæði þá verður bjartsýni og bros því ekki til hjálpar.

Enn fremur segir í greinargerðinni að engin leið sé að meta hver áhrif lögfestingar og mannréttindasamningsins geta orðið á dómaframkvæmd. Við erum að setja lög sem Norðmenn reyndu samt að athuga með afleiðingarnar af og við vitum ekki hvaða áhrif þau geta haft. Vönduð lagasetning krefst þess að skoða þau áhrif sem lögin hafa á samfélagið áður en þau eru samþykkt, ekki eftir á. En hver ber ábyrgð á þessu? Í greinargerðinni með frumvarpinu kemur jafnframt fram að lögfestingin geti leitt til, svo að ég vísi bara beint í greinargerðina, verulega aukinna skyldna sveitarfélaganna. Þetta er ekki búið að meta með neinum hætti og þarna á milli er fatlað fólk, sveitarfélög og ríki. Það er ekki búið að skoða áhrifin.

Hér erum við að tala um mögulega verulega auknar skyldur á sveitarfélögin — það stendur í greinargerðinni, þetta er ekki eitthvað sem ég er að finna upp — en hvaða auknu skyldur eru þetta? Og samt er ekkert ákvæði sem tryggir að ríkið taki þátt í að mæta þeim kostnaði sem hugsanlega kann að myndast, nema framkvæmdakostnaði og ábatamati þegar næsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks verður unnin eftir fjögur, fimm ár. Þessi vinnubrögð eru ófullnægjandi. Þetta er í raun ekki gott vegna þess að hópurinn sem þetta kemur til með að bitna á er fatlað fólk. Mér finnst ekki í boði að þingið sé að lögfesta eitthvað og búa til væntingar, réttmætar væntingar, sem síðan mögulega ganga ekki eftir.

Þetta áhyggjuefni er ekki bara fræðilegt. Í umsögn Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til velferðarnefndar Alþingis 14. apríl 2025 segir að áætlaður árlegur viðbótarkostnaður sveitarfélaga vegna lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gæti orðið á milli 14–19 milljarðar kr. Með öðrum orðum: Sveitarfélögin standa frammi fyrir mögulegum viðbótarkostnaði upp á 19 milljarða mest ef frumvarpið nær fram að ganga, án þess að ríkisvaldið hafi tryggt fjármögnunina samhliða.

Hæstv. ráðherra nefndi áðan að þetta væri allt í gildandi lögum frá 2018. En þessir fjármunir eru ekki komnir fram og þá þarf að fá fram með einhverjum hætti. Við erum að fara að samþykkja þennan samning án þess að þessi mál séu leidd í jörð. Auðvitað á fatlað fólk að geta gert ráð fyrir því að hægt sé að framkvæma það sem verður samþykkt hér og að hægt sé að framfylgja öllum réttarbótum sem verða dæmdar því í vil, að þetta sé ekki bara í orði og eitthvert skraut fyrir hæstv. ráðherra. Í hvaða stöðu erum við ef þessir útreikningar sambandsins raungerast? Í rauninni erum við að svíkja fatlaða og svína á sveitarfélögunum.

Sveitarfélögin hafa af þessu áhyggjur og mér finnst svolítil vanvirðing við sveitarfélögin að ávarpa þessar áhyggjur þeirra ekki beint. Við vitum að sveitarfélögin bera nú þegar mikinn kostnað í þessum málaflokki. Þau hafa árum saman lagt út fjármuni umfram tekjustofna og þau kalla eftir tafarlausum lagfæringum samhliða lögfestingunni. Ég styð, og Sjálfstæðisflokkurinn allur, að sjálfsögðu lögfestingu samningsins en lögfesting án tryggrar fjármögnunar sem kann að koma fram er lítið annað en léleg og ósanngjörn væntingastjórnun á kostnað fatlaðs fólks. Það verður að ræða algerlega og leiða í jörð að væntingar fatlaðs fólks verði að uppfylla. Fatlað fólk verður að hafa tryggingu hæstv. ráðherra fyrir því að það sé ekki þannig að menn ætli bara að vona að þetta gangi og menn ætli að brosa þetta í gegn eða með einhverjum öðrum hætti, heldur sé það tryggt í texta að ef það verður umframkostnaður sem sveitarfélögin ráða ekki við muni ríkið grípa það, að sveitarfélögin muni ekki lenda í því að borga þann brúsa eða þá að það versta sem er í stöðunni gerist, eins og stundum, að ríki og sveitarfélög kasti á milli sín boltanum og enginn vilji bera ábyrgð. Það er þekkt. Ef ríkisstjórnin ætlar sér sannarlega að standa við það sem lögfestingin boðar ætti að vera auðvelt að skjóta inn svona texta, einhverjum varnöglum um að ef lögfestingin núna hefur í för með sér kostnað þá komi ríkið til með að dekka þennan kostnað.

Samningurinn kveður á um ríkan rétt á aðgangi að menntun án aðgreiningar, viðeigandi aðlögun, einstaklingsmiðuðum stuðningi, mannsæmandi húsnæði og þjónustu sem hámarkar þátttöku. Er þetta raunin í dag? Ef ekki, þá þarf að laga það og það kostar. Ef við segjum að réttindi styrkist en fjármögnun haldist óbreytt erum við að kasta þessum viðkvæma málaflokki í sveitarfélögin og þeim er gert að leysa málin en á meðan bíða fatlaðir. Ég hef ekki heyrt ráðherra ávarpa þetta. Þessi staða gæti auðveldlega komið upp og hefur komið upp áður þegar hefur verið farið í viðlíka aðgerðir.

Virðulegi forseti. Við viljum öll efla réttindi fatlaðs fólks en réttindin, það að framfylgja þeim, að þau nái í gegn, verða að vera framkvæmanleg. Við eigum að samþykkja markmiðin en við verðum líka að tryggja fjármögnun, skýrleika og tímasetta ábyrgð. Hver ber ábyrgð á því ef það myndast kostnaður sem enginn vill bera? Kostnaður er eitthvað sem bæði sveitarfélög og ríki kjósa sjaldnast að bera að fyrra bragði. Hver ber ábyrgð á því? Vonandi getur hæstv. ráðherra komið hér í pontu og sagst bera ábyrgð á því. Það er auðvelt að lögfesta eitthvað og segja að það beri engan kostnað með sér en það stendur í frumvarpinu að þetta geti haft veruleg áhrif á sveitarfélögin þrátt fyrir að á öðrum stað standi að þetta hafi engin áhrif. Bara þetta orðalag, veruleg áhrif, engin áhrif, vekur upp spurningar og grunsemdir um að hér sé eitthvað órætt undir steini. Við skiljum annars sveitarfélögin eftir með óvissu og fólkið sem réttindin eigi að vernda eftir með orðin ein.

Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er rétt skref en við getum ekki látið sveitarfélögunum fatlaða eftir í óvissu með kostnað þegar réttindi fatlaðs fólks aukast með réttu. Við verðum líka að tryggja væntingar fatlaðs fólks og að sveitarfélögin fái þann fyrirsjáanleika að ekki verði skellt á þau einhverjum reikningi, bakreikningi, þegar búið er að lögfesta samninginn.

Það er ekki góð blanda að skreyta sig með blómum sem er ekki búið að greiða fyrir. Það er fátt verra en að halda að eitthvað sé komið í höfn en svo nær það ekki að raungerast vegna þess að þriðji og fjórði aðili eru að deila um hver eigi að bera kostnaðinn. Það hefur sýnt sig í sambærilegum innleiðingum erlendis, í Svíþjóð, Noregi, Bretlandi, að þegar er verið að staðfesta svona samninga við fatlað fólk og aðra kemur inn ófyrirséður eða fyrirséður kostnaður og þá verður oft ágreiningur um það hver eigi að greiða hann. Á meðan sitja þeir eftir sem eiga að njóta réttindanna eftir og hafa litla sem enga aðkomu að málinu og þurfa bara að bíða þangað til búið er að greiða úr einhverjum flækjum. Þess vegna langar mig til þess að hæstv. ráðherra komi hér í pontu og tryggi það með orðum sínum að ef það fellur til kostnaður við þessa lögfestingu muni ríkið greiða þann kostnað, að sveitarfélögin muni ekki sitja uppi með þann kaleik og vera kennt um að uppfylla ekki þennan samning heldur muni ríkið gera það. Það skiptir máli fyrir sveitarfélögin en mestu máli skiptir það fyrir fatlað fólk sem hefur til þess réttmætar væntingar að þegar þessi samningur verður lögfestur njóti það þeirra réttarbóta sem hann mun bera með sér.