fjöleignarhús.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Það er náttúrlega gert ráð fyrir því í sjálfri löggjöfinni og í frumvarpinu sem slíku að ef um fælni er að ræða — það er sérstaklega tekið fram að ef fælni er á ferðinni þá eigi það að vera samkomulag á milli íbúanna að sá sem heldur hund sé alls ekki á ferðinni svo viðkomandi, sem er hræddur við hundinn eða yfir höfuð hræddur við hunda, eigi ekki á hættu að mæta honum í stigaganginum. Þetta er ákveðið samkomulagsatriði. Það er ekki gert ráð fyrir því í greinargerð að fólk geti bara einfaldlega sagt að það sé hrætt við hunda og að það sé samasemmerki við það að ekki verði hundar í stigaganginum.
Við þekkjum það líka að það koma upp alls konar skringilegheit sem eru í rauninni heimsmet á Íslandi, sem þekkist nánast hvergi annars staðar á byggðu bóli, þegar kemur að neikvæðni furðulega margra gagnvart dýrahaldi sem byggir í raun á andúð á dýrum. Mörgum er bara illa við dýr og sérstaklega í bæjum, illa við dýr, í fjöleignarhúsum. Segja að dýr eigi ekki heima í bæjum eða borgum og eigi að vera í sveit. Við höfum hins vegar sýnt fram á það með gögnum, bæði frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og fleirum, hversu ofboðslega mikilvægt og dýrmætt það er að hafa dýr. Þess vegna skiptir öllu máli, ef um raunverulega fælni er að ræða, að það sé samtal þar á milli og góður skilningur á milli þeirra sem eru hræddir við voffann eða dýrið og eigandans sem myndi þá taka tillit til þess. Ef ekki eru náttúrlega önnur úrræði til staðar í frumvarpinu. Þetta snýst allt um skilning, gagnkvæman skilning, og virðingu og að gera sitt besta til þess að hlutirnir geti gengið vel fyrir sig.