Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú er smalað í sveitum landsins og bændur horfa til þess hverjar tekjur þeirra verða og afkoma til framtíðar. Búvörusamningar eru í gildi til ársins 2026 og vinna er hafin í atvinnuvegaráðuneytinu við gerð nýrra samninga við greinina. Það er mikilvægt að gerðir verði nýir samningar sem taka mið af aukinni samkeppni erlendis frá og horft til matvælaöryggis landsins, kynslóðaskipta og byggðafestu á bújörðum. Bændur hafa ítrekað bent á versnandi afkomu sína sem hefur m.a. haft neikvæð áhrif á eðlilega endurnýjun fjárfestinga í sveitum. Á sama tíma hefur opinber stuðningur við landbúnað dregist saman, bæði í formi minni tollverndar sem og minni stuðnings samkvæmt fjárlögum. Kjör sérstaklega sauðfjárbænda hafa á undanförnum árum farið sífellt versnandi og vinna margir hverjir aðra vinnu ef einhver kostur er. Úr þessu þarf að bæta enda er skýrt kveðið á um það í búvörulögum að kjör þeirra bænda sem stunda landbúnað skuli vera í samræmi við kjör sambærilegra stétta.
Meginstoðir íslensks landbúnaðarkerfis eru ætlaðar til þess að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Annars vegar felst það í óbeinum stuðningi í formi tollverndar og hins vegar í beinum greiðslur til bænda samkvæmt þeim búvörusamningum sem eru í gildi. Í núgildandi samningum eru gerðar ákveðnar hagræðingarkröfur til bænda en á móti hafa bændur kallað á aukinn fyrirsjáanleika og má þar nefna aukna tryggingavernd þegar kemur að óvæntum áföllum. Bændum hefur fækkað verulega á undanförnum árum og eru nú kynslóðaskipti hafin víða í sveitum landsins. Því er það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vel takist til við gerð nýrra búvörusamninga. Ungt fólk þarf að sjá raunveruleg tækifæri og atvinnumöguleika í búskap og það er skylda stjórnvalda að leggja sitt af mörkum til að tryggja framtíð greinarinnar með nýjum búvörusamningum. Það er líka hagur okkar allra landsmanna að á Íslandi verði öflugur landbúnaður til framtíðar og treysti ég því að ríkisstjórnin geri allt sem hægt er til þess að svo megi verða með góðum búvörusamningum við bændur.