157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[15:21]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 89. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju alveg óbreytt. Frumvarpið er samið í atvinnuvegaráðuneytinu.

Í janúar árið 2022 urðu straumhvörf í baráttunni við riðuveiki þegar genasamsætan ARR fannst í sauðfé í fyrsta sinn á Íslandi en sú genasamsæta gerir dýrin ónæm fyrir riðuveiki og opnaðist þannig ný leið í baráttunni gegn veikinni. Riðuveiki er ólæknandi hægfara heilahrörnunarsjúkdómur og sársaukafullur taugasjúkdómur. Frá níunda áratug síðustu aldar hafa stjórnvöld hér unnið markvisst að því að útrýma veikinni með þeim einu mögulegu aðferðum sem tiltækar voru fram til þessa, þ.e. með niðurskurði og ströngum smitvörnum. Þær aðgerðir hafa skilað miklum árangri en hafa jafnframt verið kostnaðarsamar fyrir samfélagið og bændur að ónefndu tilfinningalegu áfalli þeirra.

Vilji er meðal bænda og stjórnvalda til að berjast gegn sjúkdómnum með því að rækta fé sem er ónæmt fyrir riðuveiki og var sameiginleg landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu gefin út 8. júlí 2024. Í landsáætluninni kemur fram að stefnt sé að því að litlar líkur verði á að upp komi riðuveiki í sauðfjárhjörð á Íslandi frá og með árinu 2028 og að innan 20 ára hafi riðuveiki í sauðfé á Íslandi verið útrýmt. Þessu verði náð með ræktun verndandi og mögulega verndandi arfgerða, smitvörnum, vöktun og viðbrögðum. Frumvarpi þessu er ætlað að setja fullnægjandi ákvæði í löggjöf sem tryggi framkvæmdina.

Meginefni frumvarpsins er þríþætt. Í fyrsta lagi er lagt til að fengin verði heimild fyrir ráðherra til að fyrirskipa eða setja í reglugerð skyldu til að rækta dýr þannig að þau verði ónæm fyrir dýrasjúkdómi. Mikilvægur liður í útrýmingu riðuveiki er að ræktaður verði sauðfjárstofn hér á landi sem er ónæmur fyrir veikinni. Þannig verði ráðherra heimilt að skylda sauðfjáreigendur til að rækta fé sitt þannig að það verði ónæmt fyrir riðuveiki. Ræktunaráætlun er birt í fyrrnefndri landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu. Mikil áhersla er lögð á að hraða ræktun á bæjum og landsvæðum þar sem mikil hætta er á að riðuveiki leynist en hægar verði ræktað á öðrum landsvæðum til að varðveita erfðafjölbreytileika í sauðfjárstofninum. Stjórnvöld hafa þegar veitt fjármuni í að styrkja notkun á kynbótahrútum sem bera verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir. Undirtektir bænda hafa verið mjög góðar og margir hafa farið fram úr ræktunaráætlunum með aukinni notkun sæðinga, sérstaklega á áhættusvæðum, en þau eru öll á Norðurlandi vestra. Þrátt fyrir mikla þátttöku sauðfjárbænda í þessu ræktunarstarfi er engu að síður mikilvægt að festa í sessi skyldu til ræktunar því tryggja verður að þeir sem ekki taka þátt í ræktun geti ekki eyðilagt heildarhagsmuni sauðfjárbænda og samfélagsins alls.

Í öðru lagi er með frumvarpinu lagt til að ráðherra geti falið Matvælastofnun með reglugerðum að framfylgja tilteknum fyrirmælum um aðgerðir og að taka ákvarðanir um þær í tengslum við alvarlega dýrasjúkdóma sem koma upp, auk þess að taka ákvarðanir um greiðslu bóta á grundvelli laganna. Setning slíkra reglugerða er breyting sem er til þess fallin að auka fyrirsjáanleika og einfalda stjórnsýslu þegar upp kemur alvarlegur dýrasjúkdómur. Þetta á einkum við í tilviki nýrrar reglugerðar um útrýmingu á sauðfjárriðu sem unnið hefur verið að í ráðuneytinu en setning hennar bíður samþykktar þessa frumvarps. Ný reglugerð mun auka fyrirsjáanleika og einfalda stjórnsýslu þegar og ef upp kemur riðuveiki. Í stað núgildandi fyrirkomulags, þ.e. að ráðherra fyrirskipi aðgerðir í einstaka tilfellum og gerður verði í kjölfarið bótasamningur við viðkomandi bónda, verður framkvæmdin á hendi Matvælastofnunar sem mun taka stjórnsýslulegar ákvarðanir í hverju máli fyrir sig. Fyrirsjáanleiki viðbragða við riðuveiki sem sett yrðu með reglugerð mun bæta og auka skilvirkni stjórnsýslunnar auk þess sem bóndi getur kært stjórnsýsluákvarðanir Matvælastofnunar til ráðuneytisins. Núverandi fyrirkomulag er þungt í vöfum og tímafrekt og gefur bændum takmarkað tækifæri til að hafa áhrif á viðbrögð. Þá hafa þeir ekki möguleika á að skjóta niðurstöðum stjórnsýslulegra ákvarðana til æðra stjórnvalds, aðeins dómstóla. Ákvæði í drögum að nýrri reglugerð eru í samræmi við landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu en þar er lagt til að stjórnsýsla við uppkomu riðuveiki og varnir gegn henni færist að mestu frá ráðuneytinu til Matvælastofnunar.

Í þriðja lagi er með frumvarpinu lagt til að ráðherra verði heimilt að setja ákvæði í reglugerð um flokkun landsvæða, bæja og starfsstöðva þar sem sérstakar ráðstafanir skulu gilda til að hefta útbreiðslu alvarlegra dýrasjúkdóma í samræmi við eðli viðkomandi sjúkdóms og faraldsfræðilegra þátta og að Matvælastofnun skuli birta flokkunina á vef sínum. Mikilvægt er að stjórnvöld geti skilgreint landsvæði, bæi eða starfsstöðvar ótengt sóttvarnarsvæðum þar sem sérstakar ráðstafanir skulu gilda til að hefta útbreiðslu alvarlegra dýrasjúkdóma í samræmi við eðli viðkomandi sjúkdóms og faraldsfræðilegra þátta. Í dag eru landsvæði afmörkuð með varnarlínum og meðal sauðfjárbænda og í stjórnsýslunni eru þessi sóttvarnarsvæði nefnd sauðfjárveikivarnarhólf. Landinu er skipt í 25 slík hólf. Í drögum að nýrri reglugerð um riðuveiki í fé er skilgreint hvernig staðið skuli að flokkun bæja og takmarkanir tilgreindar fyrir hvern flokk. Þannig yrði horfið frá víðtækum takmörkunum sem nú eru settar jafnt á alla bæi í sýktu hólfi, en þess í stað munu takmarkanir á einstaka bæjum byggjast á áhættumati. Mestar takmarkanir verða á riðubæjum, minni á áhættubæjum og minnstar á bæjum sem hvorki eru riðu- né áhættubæir en þó í sama varnarhólfi. Tilgreint er í drögum að nýrri reglugerð að aflétting þessara takmarkana miðist við framgang ræktunar verndandi og mögulega verndandi arfgerða á viðkomandi bæ. Þannig geta bændur sjálfir stýrt því hvenær höftum er aflétt af þeirra bæ. Breytingunni er ætlað að styrkja lagastoð fyrir nauðsynlegri flokkun landsvæða, bæja og starfsstöðva þegar upp koma alvarlegir dýrasjúkdómar og er undirstaða fyrir nýrri nálgun í baráttunni gegn riðuveiki.

Frú forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Ég tel að frumvarp þetta sé lykilþáttur í því að tryggja að fullnægjandi heimildir séu til staðar svo unnt sé að vinna að hraðri útrýmingu á sauðfjárriðu sem valdið hefur miklum búsifjum undanfarna áratugi. Frumvarpið mun leiða til afléttingar íþyngjandi hafta á sauðfjárbændur, líkt og fyrr segir, og jafnframt leiða til mikillar einföldunar á stjórnsýslu og er því afar brýnt að klára málið. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar sem fylgir frumvarpinu þar sem finna má ítarlegri umfjöllun um efni málsins.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar.