157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[16:22]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka fína umræðu hér í salnum og langar kannski aðeins að drepa á nokkrum atriðum sem fram hafa komið í máli þeirra hv. þingmanna sem hér hafa haldið ræður. Í fyrsta lagi, kannski hið augljósa: Þessu ágæta máli, eins gott og það er, er ekki ætlað að leysa húsnæðisvandann í heild sinni eins og ég þóttist merkja á einstaka orðum hv. þingmanna. Þetta er skref í þá átt, lítið en öruggt skref. Það er ekki verið að mismuna milli þéttbýlis og dreifbýlis heldur tryggja að íbúðarhúsnæði í þéttbýli nýtist fyrst og fremst til búsetu og langtímaleigu, á meðan heimagisting utan þéttbýlis hefur ekki sömu áhrif á húsnæðismarkað og er slík gisting áfram heimil í einni eign til viðbótar. Það er ekki verið að koma í veg fyrir að fólk sem eigi slíkar íbúðir geti leigt þær út heldur eingöngu verið að segja að það sé atvinnustarfsemi og um þá atvinnustarfsemi gilda ákveðnar reglur.

Það er ekki verið að veita eftirlitsaðilum víðtæka heimild til inngrips, eins og skýrt kom fram í máli mínu og er mjög skýrt í frumvarpinu, heldur heimild sem er bundin við einstök mál þar sem uppi er rökstuddur grunur um brot og nær aðeins til þeirra gagna sem nauðsynleg eru til þess tiltekna máls. Rökstuddur grunur þýðir einfaldlega að það liggja fyrir málefnalegar upplýsingar eða gögn sem benda til brots. Þetta er ekki almenn tilfinning, ágiskanir eða sögusagnir. Það liggur fyrir að með slíkri heimild til upplýsingamiðlunar til handa ríkisskattstjóra verður eftirlitið skilvirkara, sem er mjög mikilvægt þegar áætlað er að um 4.000 eignir séu boðnar til skammtímaleigu án skráningar eða leyfa. Það er upphæð eða fjöldi sem hefur áhrif á markaðinn. Þetta er heldur ekki eignaupptaka, eins og hefur verið nefnt hér, heldur afturhvarf til þess fyrirkomulags sem var fyrir árið 2017 þegar ótímabundin leyfi voru gefin út. Undan því hefur verið kvartað gríðarlega. Þar áður voru rekstrarleyfi alltaf tímabundin og framlengd reglulega og það er verið að hverfa til þess fyrirkomulags með þessu frumvarpi að fenginni reynslu. Það er ekki verið að fara fram á einhverja breytta nálgun í umsókn heldur eingöngu að það þurfi að endurnýja leyfið á fimm ára fresti, verði þetta frumvarp að lögum. Við þá umsókn um endurnýjun þurfa rekstraraðilar að leggja fram gögn um að þeir standi skil á ákveðnum atriðum eins og brunavörnum og öðru viðlíka. Það er ekkert nema jákvætt um það að segja.

Þegar kemur að því hvaða leiðir aðrar eru færar en sú tiltekna leið sem frumvarpið bendir til er það rétt hjá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur að hægt sé að fara í skattahækkun. Það er hægt að setja gistináttagjald á heimagistingu, líkt og á við um hótel- og gististarfsemi. Mér þykir það býsna bratt. Þó að sennilega megi leiða rök að því að það muni jafna stöðuna í ferðaþjónustunni þá mun það ekki ná þeim áhrifum sem við teljum að náist fram með þeim aðferðum sem lagðar eru til grundvallar í þessu frumvarpi; að losa um íbúðir og fjölga íbúðum í langtímaleigu til að tryggja að fólk eigi þess kost að komast í slíkar íbúðir, þ.e. fjölga íbúðum til að búa í og beina ferðaþjónustunni í annan farveg. Þetta er vissulega leið og það er undir hv. atvinnuveganefnd komið að skoða hana, þó að ég sé ekki sammála.