157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

meðferð sakamála o.fl.

103. mál
[17:11]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsöguna á þessu frumvarpi til breytinga á lögum um meðferð sakamála og fleiri lögum er varða endurheimt ávinnings af brotum. Frumvarpið er lagt fram óbreytt frá 156. löggjafarþingi. Með þessu frumvarpi er í fyrsta lagi kveðið á um breytingu á ákvæðum laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, að því er varðar gagnaöflun, haldlagningu og kyrrsetningu, í öðru lagi á lögreglulögum, nr. 90/1996, að því er varðar skipulag við endurheimt ávinnings af afbrotum hjá lögreglu og loks í þriðja lagi á ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, er varða upptöku ávinnings. Frumvarp sama efnis var lagt fram á 156. löggjafarþingi, eins og áður er komið fram, en varð ekki að lögum og er nú lagt fyrir að nýju án breytinga.

Með frumvarpinu er m.a. lögð til breyting á 4. mgr. 8. gr. lögreglulaga með það að markmiði að skýra hlutverk héraðssaksóknara við endurheimt og upptöku ólögmæts ávinnings á landsvísu sem og að uppfylla þær kröfur sem fram koma í tilmælum alþjóðlega fjármálaaðgerðahópsins, FATF, á ensku Financial action task force, með leyfi forseta. Í því skyni er kveðið á um að starfrækt verði sérstök eining innan embættis héraðssaksóknara sem gegna skal tvíþættu hlutverki. Í fyrsta lagi mun hún vinna að endurheimt og upptöku ávinnings af hvers kyns refsiverðri háttsemi. Í öðru lagi mun hún hafa umsjón með haldlögðum, kyrrsettum og upptækum eignum og munum í samræmi við reglur sem ráðherra setur. Gert er ráð fyrir því að einingin eigi gagnkvæmt samstarf við önnur lögregluembætti og stjórnvöld sem að rannsókn sakamála koma og annist ráðgjöf þegar eftir því er leitað. Það er rétt að taka sérstaklega fram að ekki er gert ráð fyrir því að einingin taki að eigin frumkvæði yfir einstaka sakamálarannsóknir annarra lögregluembætta eða hluta þeirra er varða endurheimt ávinnings.

Eitt álitaefni sem fjallað var um í allsherjar- og menntamálanefnd á 146. löggjafarþingi voru tengsl ákvæða frumvarpsins við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Af umsögn Persónuverndar sem barst nefndinni við meðferð málsins á síðasta þingi og greinargerð með frumvarpinu má ráða að brugðist hefur verið að mestu við athugasemdum sem Persónuvernd gerði í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögn sinni ítrekaði Persónuvernd athugasemd sína við 13. gr. frumvarpsins. Með ákvæðinu er lögð til breyting á 3. mgr. 37. gr. a um skrá um bankareikninga í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þess efnis að starfsmenn stjórnvalda skuli hafa aðgang að miðlægri skrá um bankareikninga til að sinna lögbundnu hlutverki sínu um að koma í veg fyrir, koma upp um, rannsaka eða saksækja fyrir brot sem varða peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Nauðsynlegt er að gæta þess eins og kostur er að vinna ekki frekar með upplýsingar en nauðsyn krefur í þágu skýrt afmarkaðs og málefnalegs tilgangs með vinnslu. Þá má og benda á að skýrar þagnarskyldureglur gilda um þá aðila sem falla undir gildissvið ákvæðisins.

Ég vek athygli á því að í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar á 156. löggjafarþingi er lögð til breyting á 1. gr. frumvarpsins þess efnis að hverfa frá skilyrði um alvarleika brots, þ.e. því skilyrði gagnaöflunarheimildarinnar að um sé að ræða rannsókn brots sem varðað getur fjögurra ára fangelsi. Ítrekað var að markmið 1. gr. frumvarpsins er m.a. að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir, nánar tiltekið til að uppfylla þær kröfur sem leiða af aðild Íslands að alþjóðlega fjármálaaðgerðahópnum, FATF.

Ísland var sett á gráan lista FATF árið 2019 en eitt atriði sem FATF gagnrýndi var að lögregla hérlendis þyrfti að afla dómsúrskurðar til að afla upplýsinga hjá fjármálafyrirtækjum við rannsókn mála en það gæti leitt til óþarfa tafa. Hvað varðar þessar tafir er rétt að taka fram að þegar um er að ræða að reyna að haldleggja ávinning af afbrotum, ekki síst þegar um er að ræða netbrot þar sem einstaklingar eða fyrirtæki hafa tapað fjármunum, þá liggur á, þá er tíminn grundvallaratriði ef á að vera mögulegt að ná þessum peningum til baka. Breytingin myndi leiða til þess að heimildir tiltekinna eftirlitsstjórnvalda, sem annast rannsókn sakamála samkvæmt sérlögum, þ.e. breytingin sem lögð var til við 1. gr., yrðu ekki víðtækari en heimildir lögreglu en rök voru ekki talin standa til slíks misræmis. Ég stóð auðvitað að meirihlutaáliti allsherjar- og menntamálanefndar og ítreka það að ég er fylgjandi þessari breytingu, af því að hún var til umræðu hér áðan undir ræðu hæstv. dómsmálaráðherra, og vísa einnig til umsagnar ríkissaksóknara sem mælti til þessarar breytingar.

Forseti. Ég vil benda á sérstaklega varðandi þessa umræðu að það er töluvert góð og mikil umfjöllun um þessa breytingu, þ.e. að ákærandi geti aflað upplýsinga frá fjármálafyrirtækjum án dómsúrskurðar, í greinargerð með frumvarpinu. Þar er m.a. farið yfir þessar kröfur frá FATF og samanburður við norrænan rétt hvað þetta varðar. Í baráttu yfirvalda við skipulagða brotastarfsemi er afar mikilvægt að lögregla og ákæruvald hafi möguleika á því að leggja hald á verðmæti sem ætla má að séu afrakstur brotastarfsemi og ákærandi geti eftir atvikum gert kröfu um upptöku verðmæta. Það sem drífur skipulagða brotastarfsemi er hagnaðarvon og því augljóst að það skiptir máli að ná til hagnaðarins og svipta brotamenn yfirráðum yfir slíkum verðmætum. Við þær aðstæður, sem nánast alltaf eru uppi, að nokkur tími líði frá því að verðmæti eru haldlögð af lögreglu þar til dómur gengur í máli er mikilvægt að komið sé í veg fyrir að verðmæti rýrni og því mikilvægt að til staðar sé þekking hjá lögreglu og ákæruvaldi svo koma megi í veg fyrir verðmætarýrnun. Þetta frumvarp, verði það að lögum, leggur lóð á vogarskálar þess markmiðs hæstv. dómsmálaráðherra að auka öryggi og öryggisvitund almennings hér á landi. Það er mikilvægt að lög og reglur séu í samræmi við réttarvitund fólks og auki þannig öryggistilfinningu.