157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[18:15]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Það er margt sem örugglega mælir með því sem hv. þingmaður nefnir hér varðandi starfsstöðvarnar. Ef ég man rétt þá kostaði þetta, ég ætla ekki að segja átök enda lenti ég aldrei í átökum við embættismennina í kringum mig, en það var tekist á um sjónarmið í þessu. Ég held að sjónarmið embættismannanna birtist fremur í útfærslu ráðherrans, meira en þær gerðu í mínu frumvarpi. Það er bara þetta traust sem ég tel að sé svo mikilvægt eftir að hafa tekið mjög víða þetta samtal, bæði hér innan þings og úti um allt land, að fólk öðlist traust og vissu um að ekki eigi að fara að ryðjast inn með einhverjar stórkostlegar breytingar. Við ætlum bara að fara í að efla þetta, skrifstofu, útibú og afgreiðslustöðvar. Með þessum breyttu áherslum sem horft er til í þessu frumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu og var í frumvarpinu upphaflega, að efla þjónustuna og starfsstöðvarnar með fjölbreyttari verkefnum, tel ég myndast grundvöll fyrir því að opna fleiri afgreiðslustöðvar.

Ég get tekið dæmi um innheimtustöðina á Blönduósi. Þetta er auðvitað allt orðið unnið meira og minna rafrænt. Það var mikið kvartað yfir því að á Hvammstanga væri engin afgreiðslustöð fyrir sýslumann. Ætlunin var að reyna að sinna því með bráðabirgðalausn. Í sumum tilfellum má jafnvel semja við sveitarfélagið um að sinna einhverjum svona verkefnum en aukin fjölbreytni verkefna gefur líka tækifæri á að ráða fólk þar. Þannig getur þetta átt við fleiri staði. Þannig horfi ég á þetta. Ef við ætlum að treysta byggð í þessu landi og horfa þar af alvöru til framtíðar þurfum við að efla landsbyggðina á grundvelli verðmætasköpunar og atvinnusköpunar. Það er aðalatriðið. Þá þarf þessi þjónusta hins opinbera að fylgja og hún er að mörgu leyti að færast yfir í rafrænt form. Hún felur þó líka alltaf í sér einhver jaðartilvik þar sem þarf að leita til hins opinbera á skrifstofu. (Forseti hringir.) Við eigum auðvitað að reyna að teygja okkur í þá átt eins og við getum.