útlendingar.
Frú forseti. Ég er mjög ánægð með það að sitja sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn sem er samhent í útlendingamálum. Það held ég að sé stóra nýmælið sem við erum að horfa á varðandi afgreiðslu frumvarpa hér í þessum sal. (BHar: Stóra málið er hluti af …) Stóra málið er að það eru ekki Vinstri græn sem leiða Sjálfstæðisflokkinn í útlendingamálum lengur en mér finnst ástæðulaust að vera hér í sagnfræði. Við verðum að ræða þetta mál og hv. þingmaður spyr: Hefur þetta komið til skoðunar? Það hefur komið til skoðunar. Það eru miklar breytingar í farvatninu í þessum málaflokki. Ákveðnir samningar af þessu tagi heyra undir utanríkisráðuneytið, aðrir þættir sem varða meira refsivörslukerfið eru undir dómsmálaráðuneytinu. En stutta svarið er: Þetta er til skoðunar af því að það er vandamál og það kemur reglulega til umræðu á ráðherrafundum að nákvæmlega þetta sem þingmaðurinn nefnir er sjálfstætt vandamál, að ekki eru öll ríki viljug til að taka á móti.