157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

útlendingar.

112. mál
[20:44]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans ágætu ræðu. Jafnvel þótt það varði ekki efni þessa frumvarps ljáði hann máls á að stöðva umsóknir um alþjóðlega vernd til fimm ára. Þetta er mjög einföld spurning sem ég hef fyrir hv. þingmann: Getur hann í stuttu máli farið yfir þá framkvæmd sem slík regla kallaði á?