útlendingar.
Herra forseti. Þetta var snilldarspurning enda vissi spyrjandinn, hv. þingmaður Grímur Grímsson, að ég get ekki svarað henni, þ.e. ekki skref fyrir skref en ég veit hvert megininntakið er í aðferðafræðinni. Það er beiting fullveldisins sem okkur þykir misstórt hugtak í þessum sal, hygg ég. Fullvalda þjóð getur að sjálfsögðu sagt — með undantekningunni sem ég nefndi í máli mínu áðan er varðar kvótaflóttafólk en þar er um alþjóðlega samninga að ræða og þar er valið hverjir fá að koma til landsins og það er gert með alls konar úttektum á hverjir eru líklegir til að aðlagast, hverjir eru í mestri neyð o.s.frv. Það hefur skilað í gegnum tíðina þessum til að mynda 25 einstaklingum sem ég nefndi í tölu minni hér áðan. Fullvalda þjóð hins vegar getur sagt: Við ætlum að virða þennan sáttmála. Við ætlum að virða þessa aðferðafræði. Við viljum halda áfram að taka á móti kvótaflóttafólki en Ísland er núna á þeim stað að við teljum verkefni okkar ærin, að eiga við það verkefni sem nú þegar er komið inn fyrir landsteinana. Þar er mikið verk óunnið og mun taka langan tíma að aðlaga eða inngilda. Mér er nokk sama hvaða tískuorð ganga hér yfir þennan þingsal en það mun taka okkur langan tíma að vinna með þessum hópi sem nú þegar er kominn þannig að hann falli að íslensku samfélagi, íslenskum gildum, svo ég tali nú ekki um ef við vísum til að mynda til úttekta sem nágrannar okkar og frændur Danir hafa gert um misjafna atvinnuþátttöku hópa fólks út frá því hvaðan þeir koma og úr hvaða menningarsamfélagi. Í þeirri rannsókn kom fram mjög afgerandi niðurstaða um hvernig gengur að aðstoða mismunandi hópa við að aðlagast dönsku samfélagi. Ég hygg að það sama muni gilda um okkur hér, hv. þingmaður.