kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Herra forseti. Bara örfá orð varðandi það frumvarp sem hæstv. dómsmálaráðherra leggur hér fram og þá kannski fyrst og fremst varðandi ákveðinn afmarkaðan þátt er varðar að hægt sé að taka frá legstað til lengri tíma en núgildandi lög leyfa, til að mynda undir þeim kringumstæðum þegar tiltölulega ungir foreldrar missa barn. Ég ætla bara að leyfa mér að hvetja hæstv. ráðherra áfram með þetta mál og fagna því að þetta skuli vera komið fram. Ég tel að þetta sé mál til mikilla bóta, því miður, fyrir allt of marga, því miður fyrir allt of marga. Í þessu er í sjálfu sér ekki nein spurning til hæstv. ráðherra, herra forseti, og ég get upplýst forseta að ég gef frá mér seinna andsvarið.