157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

102. mál
[22:04]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár árin 2025–2029 sem er mikilvægt skref í þá átt að styrkja náttúruvernd á Íslandi og uppfylla okkar alþjóðlegu skuldbindingar. Þetta mál er endurflutt frá síðasta þingi þar sem það hafði fengið góða umræðu í sal og þar sem nefndin hafði fjallað mjög rækilega um málið, kallað inn umsagnaraðila og lagt lokahönd á nefndarálit þar sem tekin er afstaða til ýmissa álitaefna sem komu upp við vinnslu málsins. Ég vonast til þess í ljósi þess hve góða umfjöllun málið fékk á síðasta þingi að við getum sameinast um að klára það svona tiltölulega hratt og vel núna í haust.

Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár byggir á 33. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013. Þar kemur fram að Alþingi taki afstöðu til þess hvaða svæði eigi að njóta forgangs við friðlýsingu næstu fimm ár. Fyrir liggur mat Náttúrufræðistofnunar á verndargildi svæðanna auk frekara mats frá Náttúruverndarstofnun á því til hvaða verndarráðstafana skuli grípa til að tryggja þetta verndargildi og hver kostnaðurinn er við þessar aðgerðir.

Á síðustu árum hefur orðið sífellt ljósara hve lífríkisvernd og sjálfbær nýting auðlinda er brýnt viðfangsefni. Fyrir liggur að víða um heim og hérlendis líka er líffræðilegri fjölbreytni ógnað og náttúruauðlindir ofnýttar. Alþjóðasamningar eins og samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og Bernarsamningurinn um vernd villtra plantna og dýra og búsvæða þeirra kalla skýrt eftir því að við bætum vernd náttúru og vistkerfa. Fyrir liggur líka markmið þessara alþjóðlegu skuldbindinga, að 30% lykilsvæða fyrir líffræðilega fjölbreytni skuli njóta verndar fyrir árið 2030. Ef við ætlum að ná þessum metnaðarfullu markmiðum er ljóst að við verðum að leggja áherslu á sjálfbæra nýtingu, náttúruvernd, öflugt samtal við landeigendur og sveitarfélög og síðast en ekki síst samstöðu um mikilvægi þessara atriða.

Samkvæmt þeirri tillögu sem hér liggur fyrir er gert ráð fyrir friðlýsingu eða friðun á sex svæðum á næstu fimm árum: Goðdal í Bjarnarfirði, Hengladölum í Ölfusi, Húsey og Eyjaseli á Úthéraði, Lauffellsmýrum í Skaftárhreppi, Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettum í Borgarfirði, auk Reykjaness og Þorlákshvers við Brúará.

Tilgangurinn er að vernda fjölbreytt lífríki og einstakar vistgerðir eins og mýrahveri, rimamýrar, jarðhitalæki og fleiri dýrmætar náttúruminjar. Þá er jafnframt lögð áhersla á að fjölga svæðum þar sem mikilvægar fuglategundir, t.d. skúmur og kjói, eiga búsvæði.

Á grunni þess sem ég hef nefnt hér er tillagan að fyrrnefnd sex svæði skuli vera á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025-2029. Með þessu er leitast við að mynda öflugt net verndarsvæða um allt land, eins og lög og alþjóðlegar skuldbindingar gera ráð fyrir.

Þessi tillaga er málamiðlun. Þetta eru svona lághangandi ávextir á sviði náttúruverndar. Þetta eru þau svæði sem var hægt að ná sátt um hratt og örugglega að vernda við landeigendur og sveitarfélög. Það er mjög yfirgripsmikið samráð að baki. Ég veit að margir hefðu viljað ganga lengra og setja fleiri svæði á þessa framkvæmdaáætlun en þetta var niðurstaðan að þessu sinni. Í sumum tilvikum töldu landeigendur ekki þörf á að svæðin yrðu vernduð eða þau sett á framkvæmdaáætlun og í öðrum tilvikum vildu landeigendur og sveitarfélög eiga betra samtal við yfirvöld um hvað fælist í því að svæðin yrðu friðlýst. Fyrir vikið er ekki gert ráð fyrir að svæði á borð við Almenning við Geysi, Höfðaflatir, Norður-Melrakkasléttu eða Tjörnes verði friðlýst að sinni, þótt þau hafi vissulega verið hluti af svæðum sem fóru í lögbundna kynningu á tillögu að framkvæmdaáætlun.

Það er mikilvægt að virða sjónarmið landeigenda og sveitarfélaga, því reynslan sýnir að farsælasta leiðin til að ná árangri er þegar sátt er á milli allra aðila um markmiðin og þekking og reynsla þeirra sem eiga jarðirnar fer saman við sérfræðiþekkingu. Það er nauðsynlegt að byggja upp traust og samráð, þannig að fleiri svæði geti síðar komist á framkvæmdaáætlun og hlotið viðeigandi vernd. Stjórnvöld munu því halda áfram samtali við landeigendur jafnt sem sveitarfélög sem vilja vinna að frekari náttúruvernd á þeim svæðum sem ekki hlutu brautargengi á framkvæmdaáætlunina að þessu sinni

Það hafa auðvitað heyrst raddir um að sex svæði sé heldur lítið og það má alveg velta því upp hvort þetta sé nægilega metnaðarfullt skref í náttúruvernd. Þau svæði sem ekki náðu inn á framkvæmdaáætlunina verða áfram talin mikilvæg með tilliti til náttúruverndar og samtalið við landeigendur þessara svæða og sveitarfélögin þar sem þau eru er mikilvægt og gæti haldið áfram á komandi árum. Vonandi munu þau skref sem við stígum með þessari framkvæmdaáætlun einmitt sýna öðrum að þetta sé góð og farsæl leið og ekkert að óttast í þessum efnum.

Alþjóðlegt markmið um að vernda 30% lands, stranda og sjávar krefst þess að við stígum rétt skref í náttúruvernd. Þess vegna tel ég mikilvægt að huga vel að náttúruvernd áfram og ekki síður í hafi en á landi. Í hafinu umhverfis Ísland eru fjölmörg verðmæt og viðkvæm vistkerfi og vistgerðir og þá er auðvitað samráð mikilvægt, rétt eins og á landi.

Ef við förum aðeins yfir þessi sex svæði eru þau öll einstök á sinn hátt. Þau eru af ýmsum gerðum, sum eru lítil að flatarmáli, önnur stór, en öll endurspegla þau ákveðna sérstöðu íslenskrar náttúru, hvort heldur er vegna óvenjulegra vistgerða eða sjaldgæfra dýra og plöntutegunda.

Goðdalur í Bjarnarfirði: Lítt snortið svæði þar sem jarðhitalækir, móahveravist og mýrahveravist vaxa. Sjaldgæfar tegundir á borð við naðurtungu og laugadeplu njóta verndar.

Hengladalir í Ölfusi: Eitt stærsta háhitasvæði landsins með fjölbreyttum jarðhitalækjum, gróskumiklu grónu landi og þetta svæði hefur auðvitað útivistargildi.

Húsey og Eyjasel á Úthéraði: Flatlent votlendissvæði með ríku fuglalífi; þar verpa t.d. skúmur og kjói sem eru á válista, og einnig eru þar áhrifamikil selalátur.

Lauffellsmýrar í Skaftárhreppi: Stærsta samhengi rimamýra á Íslandi, dýrmæt vistgerð sem þarfnast verndar.

Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettur í Borgarfirði: Lindir og kaldar uppsprettur þar sem finnast einlendar grunnvatnsmarflær, dvergbleikja og birkivaxnir hólmar.

Reykjanes og Þorlákshver við Brúará: Stórmerkileg mýrahveravist, heitar uppsprettur og vatnsplöntur sem aðeins vaxa í jarðhita.

Það er líka mikilvægt að við gleymum ekki þeim svæðum sem Alþingi hefur áður tekið afstöðu til að eigi að vernda. Enn er ólokið friðlýsingaferli á allmörgum svæðum sem voru samþykkt á náttúruverndaráætlunum fyrir árin 2004–2008 og 2009–2013. Nýja framkvæmdaáætlunin leggur til að þeirri vinnu verði haldið áfram. Með þessu er tryggt að fyrri ákvarðanir glatist ekki, þó svo að ekki hafi tekist að ljúka vinnu við þær. Svo er eitt að friðlýsa en annað að tryggja líka virka vernd á þeim svæðum sem þegar hafa verið friðlýst og í því samhengi munum við leggja áherslu á að samþykkja og móta markvissar verndar- og stjórnunaráætlanir fyrir fleiri svæði sem hafa verið friðuð. Þetta verður forgangsmál í náttúruverndarmálum á næstu árum.

Kostnaður: Vissulega fylgir ýmis kostnaður því að koma upp öflugri innviðum, greiða fyrir landvörslu, viðhald og fræðsluskilti. Kostnaðarmat framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár fyrir 2025-2029 gerir ráð fyrir að sett verði upp skilti til fræðslu, gönguleiðir stikaðar og landvarsla tryggð. Slíkar ráðstafanir bæta upplifun gesta og draga úr líkum á skemmdum á viðkvæmum vistgerðum.

Lokaorð ráðgjafarnefndar náttúruminjaskrár leggja áherslu á nauðsyn þess að halda ótrauð áfram að vinna með svæðin sem hlutu ekki brautargengi að þessu sinni. Þetta er mikilvægt atriði. Við sem búum á Íslandi erum beintengd okkar einstöku náttúru, líka þeir sem eiga landið sitt eða nýta það, og flestir vilja að sama skapi leggja sitt af mörkum til að vernda hana.

Til að ná árangri þurfa hins vegar fleiri skref að fylgja, svo sem að upplýsa betur um kosti verndar, hvernig vinna má út frá reglum friðlýsingar til að auka verðmæti svæða og tryggja ávinning fyrir heimafólk.

Virðulegi forseti. Með þessari tillögu er stigið mikilvægt skref í átt að þeirri framtíðarsýn að vernda með fullnægjandi hætti þau verðmæti sem ekki verða endurheimt þegar þau fara forgörðum. Að sama skapi þurfum við að tryggja sátt, gott upplýsingaflæði og opið samtal við landeigendur, sveitarfélög og landsmenn alla.

Ég hef hér rakið meginefni þessarar tillögu til þingsályktunar. Ég legg til að henni verði að lokinni fyrri umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.