157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi.

[10:39]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Nú hefur hæstv. mennta- og barnamálaráðherra tilkynnt framhaldsskólum að hann ætli að setja á laggirnar nýtt stjórnsýslustig, svokallaðar fjórar til sex svæðisskrifstofur. Það er búið að taka ákvörðunina án alls samráðs og samtalið á að koma eftir á. Framhaldsskólinn fær að púsla inn í fyrir fram ákveðinn ramma, það er allt samráðið. Skólameistarar lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af þessum hugmyndum. Í yfirlýsingu þeirra allra segir:

„Við höfum áhyggjur af því að nýtt stjórnsýslustig muni veikja skólasamfélagið. Þær hugmyndir um stofnun nýrra stjórnsýslueininga sem nú liggja fyrir virðast bæði dýrar og illa rökstuddar.“

Í Kastljóssviðtali síðasta þriðjudag kom fram hjá hæstv. ráðherra hvert eðli slíkra svæðisskrifstofa væri. Þar talaði hæstv. ráðherra um að fjármál flæktust fyrir skólameisturum, sálfræðingar og námsráðgjafar væru til að jafna stöðuna, aðstoð við nemendur með annað móðurmál en íslensku færi fram þarna og útvista ætti agamálum og erfiðum samskiptamálum til þessara skrifstofa. Þessum málaflokkum verður ekki útvistað úr skólasamfélaginu, það þekki ég sem skólastjóri. Þeim verður ekki útvistað eins og prent- og veisluþjónustu. Þessir málaflokkar eru algjörlega samofnir skólasamfélaginu. Þetta vita allir skólamenn.

Ég spyr því hæstv. ráðherra: Eru þessar fjórar til sex svæðisskrifstofur hugmynd hæstv. ráðherra? Í öðru lagi spyr ég: Væri ekki nær að styrkja innviði skólanna sjálfra í stað þess að færa mannauð frá þeim? Ég tel mikilvægt að ráðherrann sé skýr í svörum því að nú hlustar allt framhaldsskólasamfélagið á þau svör sem ráðherra gefur við þessari fyrirspurn.