skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi.
Frú forseti. Því miður komu ekki svör við spurningum mínum eins og ég kannski vænti, því miður. En til að halda áfram og færa mig yfir í annað: Í Kastljóssviðtali á þriðjudaginn kom fram að hæstv. ráðherra væri kominn á þann stað að hann vissi hvað þyrfti að gera í málaflokknum. Staðan í menntamálum er ekki góð, það veit almenningur. Þar sem hæstv. ráðherra veit hvað þarf að gera þá vekur furðu að einungis þrjú ný mál séu í þingmálaskrá barna- og menntamálaráðuneytis, þar af tvö um menntamál, einungis tvö, á meðan það eru 10–15 í hinum ráðuneytunum. Þetta er gríðarlegur munur. Í forgang er sett að veikja framhaldsskólastigið og setja kostnaðarsaman mannauð yfir í nýtt stjórnsýslustig.
Hæstv. ráðherra er með heilt ráðuneyti, tvo aðstoðarmenn og einu nýju frumvörpin eru bann við snjallsímum og gagnagrunnurinn Frigg. Þar sem fjöldi nýrra frumvarpa er ekki að flækjast fyrir menntamálaráðuneytinu vil ég spyrja (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra: Hvað mun meira nýtt koma fram á þessu þingi til að bæta laskað menntakerfi? Hvað mun meira nýtt koma fram því að varla eru þetta bara tvö frumvörp um menntamál á þessu þingi?