157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi.

[10:45]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég get alveg sagt honum það að ég tel ekki gæði í því að dæla inn fjölda mála í þingið. Ég tel aftur á móti að við eigum að setja þá fá mál og gera það vel, vanda til verka. Hvað erum við að setja inn? Jú, við erum að fara að setja námsgögn. Gjaldfrjáls námsgögn eru nú þegar í grunnskólum og leikskólum og eru að fara í framhaldsskóla. Við erum líka að fara inn með ný barnaverndarlög sem varða fjölþættan vanda sem taka líka á skólamálum. Við erum líka að styrkja stoðir framhaldsskólanna sem er alveg óskylt því máli sem við erum með um svæðisskrifstofurnar. Við erum hreinlega að leggja inn sjö mál, gæðamál sem varða bæði börnin okkar og skólakerfið. Það er það sem við erum að gera. Gerum þetta vel frekar en að setja inn 20–30 illa unnin mál.