borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu og yfirferð yfir þingsályktunartillögu um borgarstefnu. Fyrst ég hef bara eina mínútu ætla ég bara að vinda mér strax í spurninguna. Þar sem ég er landsbyggðarþingmaður langar mig að spyrja ráðherra hvort hann ætli að leggja áherslu á mikilvægi Reykjavíkurflugvallar við útfærslu og framkvæmd stefnunnar í ljósi þeirrar ábyrgðar sem höfuðborg þarf að standa undir varðandi þjónustu við ólíka landshluta og hvort samhliða verði ekki horft fram hjá nauðsynlegri uppbyggingu grunninnviða á landsbyggðinni. Getur hæstv. ráðherra staðfest að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram sama þungamiðja og að ekki verði dregið úr tengdri þjónustu við landsbyggðina?