borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Sú vinna sem nú verður farið í eftir að borgarstefna verður samþykkt verður samráðsvettvangur milli sveitarfélaganna sem borgarstefnan varðar hér á Reykjavíkursvæðinu og á því svæði sem ég nefndi áðan, Hvítár-Hvítársvæðinu, sem er þá frá Selfossi að Borgarnesi. Ég get ekki séð að það eigi að fara að útiloka neitt sveitarfélag hvað það varðar þegar farið er að skoða þessi mál, svo ég svari því skilmerkilega. Annað væri óeðlilegt. Þá myndi svæðið einfaldlega vera minnkað sem er skilgreint sem áhrifasvæði Reykjavíkur í þessari borgarstefnu.