157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:11]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skilmerkilegar spurningar. Varðandi Reykjavík og Akureyri sem leiðandi öfl eru staðirnir leiðandi einfaldlega vegna þess að þar er flest fólk. Þar eru mestu áhrifin og þar er stjórnsýsla stærstu svæðanna í þessum sveitarfélögum. Þau verða leiðandi afl sem slík. Áhrif stefnunnar ná til þessa svæðis sem ég nefndi áðan. Ég vona að ég hafi náð að svara þessari spurningu með þeim hætti.

Hvort það sé sveitarfélagið Reykjavík, þ.e. borgarstjórnin sem leiðandi afl, þá er meira verið að meina alla borgina, að þetta svæði verði leiðandi afl í alþjóðlegri samkeppnishæfni Íslands varðandi þekkingu og að draga til sín hæft fólk. Varðandi sjálfbærnina horfum við alltaf á nýjar atvinnugreinar sem munu þá geta þróast á þessu svæði. Það held ég að sé alveg klárt mál, að fjárfestingarnar komist inn á þessi svæði í upplýsingatæknibyltingunni.

Varðandi samráðið svaraði ég hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur hvað það varðar. (Forseti hringir.) Ég get ekki séð annað en að þetta sé samráðsvettvangur þeirra sveitarfélaga sem eru á skilgreindu svæðunum. Ég á erfitt með að sjá (Forseti hringir.) að þetta sé bara samráðsvettvangur milli Reykjavíkurborgar og ríkisins. Þar hljóta fleiri sveitarfélög að koma að. Hið sama á að sjálfsögðu við um Akureyri.

(Forseti (KGH): Forseti vill minna hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að í þetta skipti, þegar fjórir þingmenn veita andsvar, er ræðutíminn styttur niður í eina mínútu, sem er skammur tími og forseti hefur fullan skilning á því, en hann er ein mínúta.)