157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:13]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal halda mig við tímann að þessu sinni og þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Ég veit að það er erfitt að svara þeim nákvæmt á svona stuttum tíma en við getum kannski tekið samtal um það síðar. Seinni spurningin mín er þá þessi: Eins og fram kemur búa 87% íbúa á þessu svæði, 13% íbúa búa utan svæðisins — hefur ráðherrann engar áhyggjur af því að þessir hópar, þessi 13% íbúa, gleymist? Hvernig eigum við að geta tengt þau við þessa stefnu?