borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Tíminn er stuttur og þess vegna langar mig að beina spurningu til hæstv. ráðherra: Hvað þýðir þetta plagg? Hvað þýðir það að Alþingi Íslendinga samþykki að álykta að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu? Hvaða þýðingu hefur það fyrir þá vinnu sem átt hefur sér stað að þessi þingsályktunartillaga verði samþykkt? Hvaða áhrif mun það hafa á sem dæmi Akureyri, Ölfus og Mosfellsbæ? Hversu mikilvægt telur hæstv. ráðherra að stefna sem þessi fái afgreiðslu á Alþingi Íslendinga?