157. löggjafarþing — 11. fundur, 25. sept. 2025.
borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
85. mál
Virðulegur forseti. Ég kannski útskýri mál mitt aðeins betur í ræðu hér á eftir en mig langar að ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hversu mikilvægt telur hæstv. ráðherra að stefna sem þessi fái umræðu og afgreiðslu á Alþingi Íslendinga? Finnst hæstv. ráðherra mikilvægt að stefnur sem unnar eru inni í ráðuneytum, eins og ég hygg að þessi hafi verið unnin með aðstoð einhvers starfshóps, fái almennt umræðu meðal þingmanna og afgreiðslu í nefndum?