157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:20]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir erindið og kannski bara minna ráðherrann á að við erum auðvitað búin að fjalla um þetta áður og m.a. fór þetta í gegnum umhverfis- og samgöngunefnd. Það var mjög áberandi, svo maður segi það nú, við gestakomur að það var ákveðin tortryggni gagnvart þessari þingsályktunartillögu. Hún sneri kannski fyrst og fremst að því að fólki fannst vanta algerlega inn í þessa þingsályktunartillögu hverjar skyldur borgaranna væru gagnvart landsbyggðinni.

Gagnvart safnsveitarfélögum sem ég hef áður rætt við hæstv. ráðherra, þá langar mig til að spyrja enn og aftur um afstöðu hans gagnvart þeim, sérstaklega núna þegar við höfum tækifæri til að gera breytingar: Af hverju er ekki horft til þeirra t.d. í þessu plaggi hér, þ.e. að það verði tekið tillit til þeirra safnsveitarfélaga sem eru má segja kannski litlar höfuðborgir á sínum svæðum þó að þau séu ekki jafn stór og Reykjavíkurborg?