borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég vil endurtaka það sem ég sagði hér áðan til að svara hv. þingmanni varðandi það af hverju það eru ekki aðrir þéttbýlisstaðir. Það var það fyrsta sem mér datt í hug. Af hverju ekki önnur svæði? Þetta er aðgerð C.4. í byggðaáætlun sem lýtur að þessu, borgarstefnu. Ég mun mæla fyrir þingsályktunartillögu til nýrrar byggðaáætlunar næsta haust. Þá kæmi vel til greina að skoða t.d. stefnu varðandi höfuðstaði á landsbyggðinni. Það kæmi mjög vel til greina, tel ég. Þrátt fyrir að hafa stór þjónustusóknarsvæði, líkt og Akureyri, eru þéttbýlisstaðir á borð við Múlaþing og Ísafjörð ekki á sama skala varðandi íbúafjölda. Það er bara ekki það sama. Við erum að tala um 10%. Það er 90% sem búa á Hvítársvæðinu og Akureyrarsvæðinu og stærð þjónustusvæða og sérhæfing þjónustu er ekki af sömu tegund, það er miklu meiri sérhæfing t.d. á spítölum og annað slíkt.
Varðandi skyldu Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar, þá er ég mikill talsmaður þess að Reykjavík ræki skyldu sína sem höfuðborg landsins, hún geri það með Reykjavíkurflugvelli t.d., að halda Reykjavíkurflugvelli (Forseti hringir.) og það eru aðrar skyldur sem ég tel að væri mikilvægt að skilgreina. Reykjavíkurborg á að vera meðvituð um þessar skyldur. (Forseti hringir.) Við erum með flest ráðuneyti og stofnanir hérna (Forseti hringir.) og það er skylda gagnvart öllu landinu, ekki bara höfuðborgarbúum.