borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á í máli mínu áðan, þá er ekki hér verið að horfa á samkeppni milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar. Það er ekki verið að gera. Það er verið að horfa á styrkleikana. Sterk Reykjavík styrkir landsbyggðina. Sterk Reykjavík styrkir Ísland, líka sterk Akureyri, svæðisborg á Akureyri styrkir landsbyggðina, styrkir Ísland. Ísland er ekkert sterkara en veikasti hlekkurinn á Íslandi.
Varðandi samkeppni milli Reykjavíkur og Akraness þá skil ég það ekki alveg vegna þess að ég lít á þetta sem sama atvinnusóknarsvæði. Þetta kemur inn á eitt atriði sem landsbyggðarþingmaður. Ég á þann heiður að vera í sama kjördæmi og hv. þingmaður, því skemmtilega kjördæmi Norðvesturkjördæmi og mér hefur alltaf fundist að landsbyggðin sé nær höfuðborgarsvæðinu heldur en höfuðborgin landsbyggðinni. Það er styttra til Reykjavíkur en frá Reykjavík út á land. Það er þetta sjónarmið. Ef það er verið að flytja eitthvað út á land, t.d. upp á Akranes, þá sé það bara alveg hræðilegt, að við séum þá komin alveg lengst í burtu. Það er ekki þannig. Þetta er sama atvinnusóknarsvæði.
Varðandi endurskilgreiningar á heilbrigðisstofnunum (Forseti hringir.) þá er það ekki mál undir mínum málaflokki en ég tel allt koma til greina með betri samgöngum og betri samskiptum, sérstaklega betri samgöngum. Það er að þróast. (Forseti hringir.) Við erum núna vonandi að fækka sveitarfélögum í landinu með betri samgöngum og höldum þeirri vegferð áfram.