borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Í þessu góða plaggi — ég er ánægður að heyra að hv. þingmaður telur þetta vera svona jákvætt plagg og ég held að það sé það — kemur einfaldlega skýrt fram að í Reykjavík sé miðstöð stjórnsýslu og menningar og hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar. Ég held að það sé nokkuð orðrétt hjá mér. Ef svo er þá leggur það auðvitað þær skyldur á höfuðborgina að taka það hlutverk sitt alvarlega og tryggja aðgengi allra landsmanna, hvort sem þau koma frá Grímsey, Vestfjörðum eða Höfn í Hornafirði, að heilbrigðisþjónustunni. Það er auðvitað ekki gert með öðrum hætti en að tryggja að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram við lýði og hann miklu frekar efldur. Ég myndi gjarnan skora á borgarfulltrúa að taka hér undir baráttu kollega þeirra hringinn í kringum landið. Setja þrýsting á að taka á bílastæðagjöldunum, sem eru hálfgert hneyksli. Þeir sem koma og leggja fyrir utan flugstöðina á Egilsstöðum hafi þó alla vega rýmri tíma án þess að það leggist á þá ósanngjörn gjöld, þ.e. ef þeir eru að fara suður á bóginn til að sækja sér læknisþjónustu eða fara í leikhús eða annað af hinu jákvæða sem Reykjavíkurborg hefur upp á að bjóða.