borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Það má líta á höfuðborgarsáttmálann sem þátt í því að efla samkeppnishæfni höfuðborgarinnar. (BHar: Akkúrat. Mjög mikilvægt. )Þá er það hluti af borgarstefnu sem slíkri, það mætti fræðilega líta á það þannig. Það sem mig langar aðeins að benda hv. þingmanni á, því hún hefur áhyggjur af því að textinn sé of lítill, er að lykilviðfangsefnin koma fram í greinargerðinni. Þar segir, með leyfi forseta:
„Borgarstefna taki til lykilviðfangsefna sem unnið verði að í virku samstarfi ríkis og viðkomandi sveitarfélaga. Þannig verði tryggt að framtíðarsýn stefnunnar verði að veruleika. Lykilviðfangsefnin skuli vera eftirfarandi:
a. Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun.
b. Alþjóðleg samkeppnishæfni.
c. Innviðir og umhverfi.
d. Heilbrigðis- og félagsmál.
e.Menntun og menning.“
Þannig á að vinna að því að efla svæðin með þessum lykilviðfangsefnum þegar við förum í samráðið. Aðaltillaga mín í borgarstjórn er að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkis og borgarsvæðanna og á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem settar eru fram leiði til aðgerða og styðji þannig að markmiðum stefnunnar verði náð sem ég fjallaði um áðan, sem er að þessi svæði verði efld og samkeppnishæfni verði efld. Þetta er vilji þingsins, verði þetta samþykkt sem kemur fram, um það að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnunnar. Um leið og þetta verður samþykkt þá komum við á formlegum samstarfsvettvangi ríkis og þessara borgarsvæða sem skilgreind eru í greinargerðinni, Hvítá-Hvítá og svo Akureyrarsvæðið, sem er á Akureyri og austur í Mývatnssveit. Þetta er vinnusóknarsvæði, 30% íbúa Akraness vinna á höfuðborgarsvæðinu og fólk sækir vinnu líka frá Selfossi. Á þessum samráðsvettvangi verður þetta inntak þróað þannig að áherslurnar verði settar fram, leiðir til aðgerða, og þá getum við fengið aðgerðaáætlun. (Forseti hringir.) Þannig er þetta hugsað. Kannski Sjálfstæðisflokkurinn komi með breytingartillögu (Forseti hringir.) að borgarstefnu, að lykilviðfangsefnin, a til e, verði sett inn í texta tillögunnar, það má vel ræða það.