borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Einmitt út af því að hæstv. ráðherra segir hér að lykilviðfangsefni komi fram í greinargerðinni, þá er það að mörgu leyti punkturinn minn, að þingmenn geta ekki breytt greinargerð. Þingmenn geta ekki breytt greinargerð þannig að ef það er eitthvað í greinargerðinni sem er mikilvægt og skilgreinir frekar það sem á að gera, þá á það að koma fram í sjálfri þingsályktunartillögunni því að þingmenn geta haft puttana í því.
Virðulegur forseti. Ég er ekkert á móti mörgu af því sem hæstv. ráðherra er hér að segja, eins og að efla samkeppnishæfni, en ég er bara að segja að þessi þingsályktunartillaga er mjög óljós hvað það varðar. Hún er fóðruð ágætlega í góðri greinargerð en ég hefði sagt við hæstv. ráðherra að hann hefði getað sparað sér sporin og stofnað þennan samvinnuvettvang. Það þarf ekkert heimild Alþingis til þess. Ef hann vill það endilega þá er ekkert mál örugglega að afgreiða slíka þingsályktunartillögu bara á núll einni og hefja viðræður um þetta og koma svo með raunverulega framkvæmdaáætlun inn í þingið sem þingmenn geta haft raunverulegar skoðanir á og sem raunverulega tryggir það sem ég veit að margir eru að vonast til þess að fá með samþykkt borgarstefnu, t.d. að tryggja að flugvöllurinn sé hér til staðar, tryggja það að borgin standi undir væntingum sem höfuðborg þessa lands, tryggja að það verði fjármagn í Háskólann á Akureyri eða Heilbrigðisstofnun á Akureyri. Allt þetta sem ég veit af tali mínu við sveitarstjórnarfulltrúa að þau halda og trúa raunverulega að sé að finna í þessari borgarstefnu. Það er það sem ég er að reyna að halda fram hér, virðulegur forseti, að það er ekki rétt. Það er verið að búa til falskar væntingar og vonir með því að segja það.