borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég er í grundvallaratriðum sammála því að Reykjavíkurborg sinni sínum skyldum. Mér finnst að allir eigi og öllum beri að sinna sínum skyldum, en það þarf þá að útskýra fyrir viðkomandi hverjar skyldur hans eru nákvæmlega. Það má ekki vera bara huglægt mat einhvers hverjar skyldurnar eru. Eins og við upplifðum hérna og ég náttúrlega var hjá borginni í kjölfar efnahagshrunsins og það var gríðarlega mikill félagslegur vandi sem féll á borgina, alveg gríðarlega mikill. Við sáum hér útigangsfólk sem aldrei áður. Þetta er eitt af fjölmörgum hlutverkum sem höfuðborgin hefur tekið á sig framar öðrum sveitarfélögum. Það er þá helst kannski höfuðstaðar Norðurlands, Akureyri, sem hefur þurft að takast á við viðlíka vanda, þó í minna mæli sé. Mér hefur fundist bara mikill sómi af því en það er ekki skoðun allra. [Hlátur í þingsal.] Einhverjum öðrum kann að finnast eitthvað annað.
Það eina sem ég er að segja, ekki það eina en það sem ég er að segja í aðalatriðum er að það er gott að skilgreina og vita hverjir eru með skyldurnar og ég fagna því að því fylgi fjármagn. Ég þarf bara aðeins meiri tíma til að skilja það. — Takk.