borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir svarið. Ég held að við séum algerlega sammála um þetta mál. Talandi um að skilgreina verkefnin þá segir í III. kafla þingsályktunartillögunnar — I. kaflinn er framtíðarsýn og meginmarkmið, II. kaflinn er lykilviðfangsefni og svo er III. kaflinn samstarf ríkis og borgarsvæðanna — þar er mér falið að:
„… koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem hér eru settar fram leiði til beinna skilgreindra aðgerða og/eða samþættingar við aðgerðir í fyrirliggjandi áætlunum hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og styðji þannig við að markmiðum verði náð.“
Ég get ekki séð annað en að í þessum samráðsvettvangi verði farið í að einfaldlega skilgreina þessar aðgerðir; hvað það sé sem er ætlast til af Reykjavíkurborg eða borgarsvæðinu og hver markmiðin séu. Það væri kannski gaman að heyra álit fyrrum borgarstjóra, hv. þm. Jóns Gnarrs, (Forseti hringir.) hvað hann telji vera veikjast hvað það varðar. Ég er algerlega sammála því að fátækt fólk leitar til Reykjavíkur og líka að vissum hætti til Akureyrar, það leitar í fjöldann. Það er styrkleiki. Ísland er sterkt með (Forseti hringir.) Reykjavíkurborg og líka landsbyggðinni. Þetta er ekki samkeppni á milli.