borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Þetta var að mörgu leyti áhugaverð ræða í framhaldi af þeirri umræðu sem hefur verið hér fyrr í dag þar sem við ræðum höfuðborgarstefnu Íslands 2025–2040. Það hafa nokkrir þingmenn komið inn á málefni Reykjavíkurflugvallar. Þess vegna var þetta að mörgu leyti áhugaverð ræða frá fyrrverandi borgarstjóra og hv. þm. Jóni Gnarr, þau viðhorf sem þar koma fram gagnvart hlutverki Reykjavíkur, höfuðborgarinnar, gagnvart landinu öllu. Ég held að flestum sé a.m.k. ljóst að fyrir rúmum 200 árum var sett raunveruleg höfuðborgarstefna fyrir Ísland sem snerist um það að hér yrði byggð upp stjórnsýsla, dómsvaldið og aðrar helstu stofnanir ríkisins. Þetta er árið 1810–1820 og svo heldur áfram hröð þróun í þessa átt. Það kemur hins vegar á óvart — vegna þess að þetta er ekki nýtt plagg hér í umræðunni, ég man við ræddum þetta í stefnumótandi byggðaáætlun. Ætli það hafi ekki verið 2018, fyrir sjö árum, sem það var einmitt verið að kalla eftir höfuðborgarstefnu og hlutverki Reykjavíkur í þeirri mynd, höfuðborgarstefnunnar, þ.e. skyldum og réttindum borgarinnar og aukinni samkeppnishæfni og öllu það dæmi.
Það sem þann sem hér stendur langaði kannski að spyrja um á þessum tímapunkti — vegna þess að andstaða borgarstjórnarmeirihlutans á sínum tíma, 2010–2014, var ótrúleg og þetta er svolítil borgríkisstemning sem kemur fram í þessari ræðu hér og þessari nálgun — er hvernig þingmaðurinn lítur í dag á hlutverk Reykjavíkurflugvallar sem er einn af helstu öryggisinnviðum landsins; sjúkraflugið, innanlandsflugið, almannavarnakerfi landsins byggist að miklu leyti á Reykjavíkurflugvelli. Hver eru viðhorf hv. þingmanns í dag varðandi málefni Reykjavíkurflugvallar? Eða eru þau bara eins og þau voru hér 2010–2014?