borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þessar hugleiðingar um flugvöllinn og málefni flugvallarins. Það er eitt af stórum málum sem falla í þann flokk sem ég var að tala um áðan sem hefur ekki verið almennilega skilgreint og gert upp. Þessi flugvöllur stendur í borgarlandi Reykjavíkur og hann var tekinn eignarnámi á stríðstímum, eða landið. Þar uppástendur starfsemi sem hefur ríkt ákveðið ósætti um, þ.e. hvaða skyldur borginni beri að uppfylla þarna og hvaða skyldur henni beri ekki að uppfylla. Það eru skiptar skoðanir á því. Flugvöllurinn er ekki bara tæknilegt staðsetningarmál heldur hápólitísk mál. Ég hitti nú formann Félags leikskólakennara hérna við þingsetningu þar sem leikskólakennarar og kennarar voru að vekja athygli á sér og störfum sínum á Austurvelli og við vorum að ræða flugvöllinn. Ég sagði: Er ég kominn aftur? Eru ekki 13, 14 ár síðan ég var hérna og við erum enn þá að tala um leikskóla og flugvöllinn? Verðum við ekki að reyna einhvern veginn að leysa þetta? [Hlátur í þingsal.]