157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:23]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er hér í andsvörum við ræðu hv. þm. Jóns Gnarrs en ég verð að fá að skjóta inn í vegna þess að hv. þingmaður var að velta fyrir sér ábyrgðinni og svo kostnaðinum, hvort Reykjavíkurborg fengi einhverjar greiðslur fyrir þetta aukna hlutverk sem mögulega kannski væri verið að fela þeim í borgarstefnu. Hæstv. ráðherra svarar því svo til að það hafi verið samþykkt í jöfnunarsjóðsfrumvarpinu. Ég vil minna á það að þegar við ræddum þetta mál hérna fyrir ári síðan þá hafði ég miklar áhyggjur af því að þetta væru einhvers konar falin rök fyrir jöfnunarsjóðsfrumvarpinu og höfuðborgarálaginu. Þá sagði hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„… ég sé ekki tengingu hér við það. Það er ekki þjónustuhlutverk sveitarfélaga sem hér er undir“

Bara svo við höldum því til haga, virðulegur forseti, það er greinilega búið að skipta um skoðun í því.

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að spyrja hv. þm. Jón Gnarr. Mér fannst gott innlegg hér frá honum og það er gott að fá einhvern sem hefur verið í hans hlutverki, verið í borgarstjórn lengi og borgarstjóri, að velta því einmitt fyrir sér hvað í þessu felst, þessu plaggi sem er undir. Nú ítreka ég að þingsályktunartillagan sem slík er bara rétt rúmlega ein og hálf blaðsíða. Þykir hv. þingmanni það skýrt á þessum þremur köflum, framtíðarsýn og meginmarkmið, lykilviðfangsefni og samstarf ríkis og borgarsvæðanna, hvað í þessu felst? Hvað er borgarstefna? Hvað er framkvæmd borgarstefnu sem við ætlum þá að fela hæstv. ráðherra? Í hverju felst það? Þegar við mögulega afgreiðum þetta hérna frá þingi, hvað erum við að segja hæstv. ráðherranum að fara að gera?