borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Er það skýrt? Já, í meginatriðum. Það á að samræma stefnu fyrir höfuðborgina, fyrir Reykjavík, og skýra hlutverk hennar og skyldur og tilgang til framtíðar. Byggja upp heildstæða framtíðarsýn, hvernig við viljum sjá borgina þróast. Mér finnst það í meginatriðum skýrt. Síðan þegar við erum komin út í jöfnunarsjóð og fjármögnun er það eins og oft í samskiptum sveitarfélaganna við ríkisvaldið að maður hefur tilhneigingu til að fagna ekki peningnum fyrr en maður sér hann á borðinu. Ég verð að játa að mér finnst margt mjög flókið og margt þarna sem ég myndi vilja glöggva mig betur á. Ég er miklu nærri eftir svör hæstv. ráðherra hér áðan. Mér finnst þetta í meginatriðum gott mál. Hvort þetta mun breytast lítið eða mikið veit ég ekki. En mér finnst þetta gott mál.