borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að ég átti kannski von á öðru því að ég heyrði að hann væri svolítið að gagnrýna orðræðuna sem hefði skapast hér í umræðu um þetta plagg, þar sem m.a. var verið að ræða skyldur höfuðborgarinnar. Mér fannst hv. þingmaður koma með áhugaverðan punkt í ræðu sinni um að það væri t.d. í lögum í Noregi hver skylda Óslóborgar væri. Ég hélt að við gætum velt því fyrir okkur hvort það væri ástæða til að vera miklu skýrari hér, eins og ég var að segja áðan, hvort sem það er í lögum eða í þingsályktunartillögunni sjálfri. Við heyrum alveg hvernig hv. þm. Sigurjón Þórðarson túlkar og skilur þetta plagg sem hér er undir. Mér heyrist hv. þm. Jón Gnarr túlka það með allt öðrum hætti. Nú eru þeir í sitthvorum flokknum en þetta eru samt sem áður flokkar sem mynda hér ríkisstjórn.
Þetta er nákvæmlega það sem ég óttast með samþykkt þessa plaggs, að enginn viti raunverulega hvað það þýði. Þess vegna spyr ég aftur hv. þingmann: Finnst honum ekki ástæða til að við skýrum það enn frekar (Forseti hringir.) í sjálfri þingsályktunartillögunni hvað er átt við? Hvað er átt við með borgarskipulagi og borgarsvæði? Er sniðugt að borgarsvæði sé alveg frá Hvítá til Hvítár? (Forseti hringir.) Óttast hv. þingmaður ekki að það geti flækt til að mynda umræðu um mikilvægi samgöngusáttmálans sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér saman um?