157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:29]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir hennar orð og hugleiðingar. Ég verð að viðurkenna að varðandi orðalag þá veit ég ekki alltaf hvað er átt við. Eins og t.d. þegar sagt er „leitast skal við“ Ég gæti verið áhyggjufullur út af ýmsu. Það sem ég myndi kannski hafa mestar áhyggjur af er fjármögnun og síðan hvernig hlutir rekast á, eins og borgarstefna, borgarlína og sveitarstjórnarlög og stjórnarskráin. Ég hef ekki fullnægjandi skilning á því alltaf.