157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Eins og sá sem hér stendur kom inn á í andsvari áðan þá hefur þetta plagg verið hér í þinginu í töluvert langan tíma. Að minnsta kosti var þetta 2018 í ræðu hjá þeim sem hér stendur sem sneri einmitt að stefnumótandi byggðaáætlun, C.4., og þar kemur þetta fyrir varðandi höfuðborgarstefnu. Þá sagði sá sem hér stendur og hafði eftir að mótuð verði höfuðborgarstefna sem skilgreini hlutverk Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar allra landsmanna, réttindi og skyldur borgarinnar sem höfuðborgar Íslands og stuðli að aukinni samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins og landsins alls. Nú þegar við ræðum þetta sjö árum seinna og miðað við þessa umræðu sem hefur verið hér rétt á undan þá virðist vera óvissa um það hvort þetta plagg nái heildstætt utan um hlutverk Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar Íslands. Það virðist vera afmarkað stjórnsýslulega, þetta er einhver upptalning, en það er ekki tekið kannski á ýmsum stórum atriðum. Þetta er svolítið sama orðalag sem er búið að fylgja okkur lengi hér í þinginu þegar þetta plagg hefur verið hér til umræðu.

Hv. þm. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, kom með sitt sjónarhorn, hvernig nálgast beri málið út frá skyldum Reykjavíkurborgar sem er svolítið svona eins og hlutverk borgríkis, það hafi ekki skyldur gagnvart landsbyggðinni og þær hafi ekkert verið skilgreindar af löggjafarvaldinu eða annars staðar. Það eru þó til stefnur hjá ríkinu, eins og í flugstefnu. Þar er talað um Reykjavíkurflugvöll, í flugstefnu sem hefur verið samþykkt, um mikilvægi Reykjavíkurflugvallar og samgangna í tengslum við hann við landsbyggðina þannig að það er komið inn á það í því plaggi.

Það væri áhugavert að heyra sjónarmið hæstv. innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, gagnvart þessum þætti, hvort það sé verið að skilgreina þá, miðað við þá umræðu sem hér er, með nægilega sterkum hætti raunverulega þetta öryggishlutverk höfuðborgarinnar gagnvart landsbyggðinni. Ef við skilgreinum það ekki þá er þetta bara náttúrlega svolítið orðagjálfur, ef við förum ekki í dýpri merkingu í þessari umræðu um hvert hlutverk höfuðborgarinnar er gagnvart öllu landinu. Við erum búin að staðsetja og leggja áherslu á og þannig hefur það bara verið stefnan áratugum saman að byggja upp heilbrigðisþjónustuna, öflugustu einingar í heilbrigðisþjónustunni hér á Landspítalanum við Hringbraut og ég sé ekki betur miðað við þau húsakynni sem er verið að byggja þar en að það sé ætlunin að halda áfram á þeirri braut, a.m.k. næstu áratugina. Við erum með alla stjórnsýsluna meira og minna bara á þessum fermetrum hérna í miðborg Reykjavíkur. Löggjafarvaldið er hér. Við erum meira að segja með dómsvaldið meira og minna hérna, tímabundið við Fossvoginn, en hugmyndir ríkisins eru meira að segja að koma því í höfuðborgina, í miðju miðborgarinnar.

Það eru skrýtin sjónarmið sem komu fram hjá hv. þm. Jóni Gnarr, að ætla einhvern veginn að skilja sig frá því sem er búið að gerast í þessu landi undanfarin rúmlega 200 ár, hvernig menn hafa unnið hlutina og hvað þá síðustu áratugi þar sem öll stefnumótun af hálfu ríkisins hefur snúist um það að byggja meira og minna alla helstu þjónustu við landsmenn og öflugustu þjónustuna hérna megin við Snorrabraut á mjög takmörkuðu landsvæði. Það þýðir að aðrir landsmenn þurfa fyrst og fremst að komast á þann punkt þegar mikið liggur undir og þá er það sérstaklega eins og með Landspítalann en auðvitað menntastofnanir meira að segja líka. Við erum með háskólann og HR. Háskólinn í Reykjavík fór rétt út fyrir Snorrabrautina, aðeins austar. Það er allt hér í tíu mínútna göngufæri frá Alþingishúsinu. Það að koma upp og segja að Reykjavíkurborg hafi engar skyldur í þessu landi — Reykjavíkurborg hefur haft gríðarlega miklar skyldur gagnvart öllu landinu. Þetta er bara búið að vera að byggja upp áratugum saman og hefur gríðarlegt fjármagn tengt þessu sem hefur mikil áhrif á hag Reykjavíkurborgar efnahagslega. Þessu held ég að flestir átti sig á og þetta þarf að dýpka í þessu plaggi og ég spyr bara hæstv. ráðherra hvort þetta þyrfti ekki að koma fram í þessu plaggi með skýrari hætti.

Í kafla 5.1. í þessari borgarstefnu fyrir árin 2025–2040 stendur:

„Borgarsvæði Reykjavíkur.

Með borgarstefnu er leitast við að skýra hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar. Það er óumdeilt að Reykjavík er miðstöð viðskipta, stjórnsýslu, menntunar og menningar í landinu. Í því felst að þar er aðsetur æðstu stjórnar lýðveldisins, Alþingis, Stjórnarráðsins og Hæstaréttar. Þar er hornsteinn heilbrigðiskerfisins, helstu menningarstofnanir ríkisins og öflugir háskólar. Höfuðborgin er megingátt inn í landið fyrir alþjóðatengsl, vöruflutninga og fjárfestingar. Sem höfuðborg og fjölmennasta sveitarfélag landsins er Reykjavík leiðandi afl þegar kemur að því að takast á við sameiginleg verkefni á landsvísu.“

Þetta er ákveðinn texti og það er mikið sett inn í þessa málsgrein. En hér er þá spurning hvort þurfi ekki að skýra enn frekar þetta hlutverk miðað við þá umræðu sem hefur farið fram hér í dag.

Varðandi svæðishöfuðborgina Akureyri. Eins og hv. þm. Jón Gnarr kom inn á og fleiri örugglega fyrr í dag finnst mér bara eðlilegt að tala frekar um höfuðstað Norðurlands eins og hefur verið gert og málvenjan hefur verið. Fyrir mér hefur verið mikilvægt að byggja upp innviði. Það er undirstaðan fyrir öflugu efnahagslífi, atvinnulífi og þannig byggja svo samfélögin, öflug menning, menntakerfi og að þannig sé unnið, flutningskerfi raforku inn á svæðið, það sé orka á svæðinu, hún var ekki til staðar í 15–20 ár, nýkomin til, það sé byggður upp öflugur flugvöllur með innviðum sem geti þá sinnt stóru hlutverki, Sjúkrahúsið á Akureyri, byggja það upp sem er hitt sérgreinasjúkrahúsið í landinu fyrir utan Landspítalann, Háskólinn á Akureyri, menntaskólinn, verkmenntaskólinn, þetta eru þessar undirstöður. Það verður að halda þessu algerlega til haga eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra hér áðan, og við þekkjum það að fleiri í þessum sal, hér er hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson í salnum, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, við þekkjum þessar tölur, hvernig þær eru, hvort sem það er menning, félagsleg þjónusta eða aðrir þættir sem einkenna sem eru á svipuðum stað eins og á íbúa í Reykjavík, jafnvel hærri tölur. En það er líka sérstaða miðað við mörg önnur stærri sveitarfélög landsins sem kemur fram þar, þannig að það er eðlilegt að nálgast það með þeim hætti og með jöfnunarsjóðinn og fleira einmitt að nálgast þetta eins og er verið að tala um og við samþykktum hér í sumar.

Ég sé að það fer nú að styttast í miðað við þennan fundartíma. Þá ætla ég ekki að fara mjög djúpt í það en ég legg bara áherslu á það að í vinnu við plaggið inn í umhverfis- og samgöngunefnd — og raunverulega gæti líka hæstv. ráðherra málaflokksins tekið málið til sín aftur og komið þéttari texta inn ef það er svona mikil þörf á að skilgreina betur það sem tengist t.d. Reykjavíkurflugvelli og helsta öryggishlutverki. Það er ekki rætt kannski alveg á dýptina í plagginu um þetta, almannavarnakerfið, aðgengi að okkar öflugustu heilbrigðisþjónustunni. Sjúkrahúsið í Reykjavík, Landspítalinn, er það sjúkrahús sem getur tekið þessi 10% erfiðustu tilvika í landinu þar sem er enginn annar staður, um það snýst fyrst og fremst sjúkraflugið. Það er að koma fólkinu til að ná þessari öflugustu þjónustu sem Landspítalinn býður upp á og enginn annar í þessu landi.