borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta ágæta andsvar sem var mjög efnislegt og margir punktar. Ég er svona að reyna að muna punktana. Þetta var bara nokkuð gott. Það kom þó fram með Kjarnaskóg að það hefði bara verið einhver maður úti í sal sem minntist á að mögulega ætti að byggja í Kjarnaskógi. Það er kannski ekki það sem maður fer venjulega með í ræðustóli, ef maður heyrir eitthvað úti í bæ. Maður kannski aflar sér gagnanna og reynir að koma hérna fram og vera með einhvern rökstuðning við málið. En þetta var ágætt andsvar. Ég held að þetta hafi verið svolítil „zen“-stund hjá okkur og við kannski þurfum að taka okkur fleiri svona stundir svo við náum einhverri dýpri merkingu.
Fyrst ég á hérna eina mínútu eftir ætla ég aðeins að fara í það sem við vorum að ræða áðan og ítreka enn einu sinni við hæstv. innviðaráðherra að það þarf að þétta pakkann. Það þarf að þétta þetta plagg ef það er ekki meiri skilningur á textanum hjá hv. þingmanni í þingmeirihlutanum, á þessari merkingu. Ef við ætlum að setja fram eitthvert plagg um höfuðborgarstefnu og svæðisborgina Akureyri eða hvað það er þá þarf — og ég hélt að við hefðum kannski verið búin að læra það á síðustu tveim, þrem árum — að koma fram það sem tengist öryggismálum samfélagsins. Það er ekki beint verið að fjalla um það. Það er talað um sjúkrahúsþjónustuna í Reykjavík sem er okkar líflína, 1.000 sjúkraflug á Íslandi á ári. 600 þeirra eru F1 eða F2, þ.e. fólk í lífshættu sem er fyrst og fremst að koma á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta eru að verða tæp tvö flug á dag. (Forseti hringir.) Þetta er það sem ég legg til við hæstv. innviðaráðherra að setja inn í plaggið.