borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég tel að þessi tillaga til þingsályktunar svari þeim spurningum sem hv. þingmaður var með. Í framtíðarsýn og meginmarkmiðum eins og ég kom inn á áðan og ekki síst varðandi lykilviðfangsefnin, það eru innviðir og ég fór inn á samgöngumálin áðan. Það eru heilbrigðismálin og ég fór inn á þau. Varðandi t.d. heilbrigðismálin, þá er fjallað um þau og eins og ég sagði í síðustu ræðu minni þá eru þetta skyldur gagnvart öllu landinu. Á þessum tveimur spítölum er sérhæfð heilbrigðisþjónusta sem er ekki veitt annars staðar og þá verða íbúar landsins að geta komist þangað. Það er alveg grundvallaratriði.
Varðandi önnur atriði sem hann kom inn á þá er þetta enn og aftur borgarstefna. Þetta er hluti af byggðaáætlun. Við erum að reyna að styrkja alþjóðlegt samkeppnishæfi svæðis sem 87% íbúanna búa á. Við erum að styrkja samkeppnishæfni Íslands. Það er það sem við erum að reyna að gera, samkeppnishæfni gagnvart umheiminum svo við séum ekki að missa okkar besta fólk úr landi o.s.frv.
Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að þetta nái fram að ganga svo að ríkisstjórnin fái leiðarljós, fái framtíðarsýn með meginmarkmiðum og lykilviðfangsefnum til að fara í samstarf við borgarsvæðin til að vinna að borgarstefnu. Miðstjórnarvaldið getur ekki komið eitt og sér með borgarstefnu. Það myndi ganga á sjálfstæði sveitarfélaganna.