stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir góða framsögu á máli sem er orðið kunnugt efnahags- og viðskiptanefnd þar sem við fengum það til umfjöllunar núna í vor. Eins og ráðherra fór yfir fjallar það um að efla stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar. Mig langaði aðeins að gera grein fyrir því hvað nefndin gerði í vor. Hún fékk til sín gesti og sendi málið til umsagnar og fékk þó nokkrar umsagnir, m.a. frá Seðlabanka Íslands, Byggðastofnun, Lánasjóði sveitarfélaga, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og fleirum. Ég verð að þakka hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir að taka tillit til þeirra breytinga sem við lögðum til í nefndaráætlun í vor. Það mun auðvitað auðvelda nefndinni vinnuna sem er fram undan. Auðvitað mun málið, ef því verður vísað til nefndarinnar sem ég geri fastlega ráð fyrir, fara sína hefðbundnu leið í umsagnarferli. En það mun að einhverju leyti auðvelda okkur vinnuna og núna er málið líka orðið nefndinni vel kunnugt. Það má kannski víkja að því að nefndin var mjög samstiga í sinni vinnu í þessu máli.
Það mál sem ráðherra kom inn á áðan, sem við hugsuðum kannski mest um, er það að heimilt sé að undanþiggja Byggðastofnun, Lánasjóð sveitarfélaga og Náttúruhamfaratryggingu Íslands frá þessum lögum. Það er þá fyrst og fremst vegna smæðar þeirra. Seðlabankinn hvatti til þess í sinni umsögn að það yrði ekki gert. Nefndin fór ítarlega í þann þátt málsins og það var mat nefndarinnar að fara að tillögu ráðuneytisins að undanþiggja þessar stofnanir frá þessum lögum. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta mál nái fram að ganga og í ljósi þess hve mikil hætta steðjar að netöryggi. Það er mjög gleðilegt ef þetta mál nær fram að ganga. Ég vil líka hvetja þessar þrjár litlu stofnanir sem verða undanþegnar nái þetta fram að ganga, að halda vel utan um sín mál af því að ég held að þetta skipti gríðarlega miklu máli. Ég er spennt að fá málið aftur inn til nefndarinnar og hver veit nema það komi nýir vinklar á málið. Ég veit að nefndin mun vinna að því af mikilli fagmennsku og einurð eins og gerðist nú í vor.