157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

99. mál
[17:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir að koma hér upp og fara yfir ferli málsins við fyrri meðferð þess. Sérstaklega vil ég hæla efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að hafa hlustað á þau sjónarmið fjármálaráðuneytisins að undanþiggja ákveðna aðila. Taka verður tillit til þess þegar að Evrópureglur eru skoðaðar að Ísland er minna samfélag en það samfélag sem reglurnar eru hannaðar fyrir. Þeir aðilar sem myndu í þeim löndum heyra undir reglur vegna stærðar sinnar eru á Íslandi mun umfangsminni. Þingheimi er tíðrætt um svokallaða gullhúðun. Ég held að hér sé dæmi um, og raunar gott dæmi um það, þegar Alþingi tekur af skarið og gengur skemur eða alla vega nýtir að fullu þær heimildir sem eru til staðar til þess að létta á reglum þar sem augljóslega eru málefnaleg rök fyrir því. Ég vil því einungis þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir þeirra góðu vinnu.