157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra laga um verðbréfun. Lagt er til að lögfestar verði Evrópugerðir um verðbréfun. Aðallega er um að ræða gerð sem ég vísa hér eftir til sem STS-reglugerðarinnar, en jafnframt tvær reglugerðir um breytingar á svonefndri CRR-reglugerð, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.

Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Það er nú endurflutt að mestu óbreytt en tekið hefur verið tillit til nefndarálits meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar frá síðasta þingi og er breytingunum lýst vel í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.

Verðbréfun er viðskiptasamningur þar sem greiðslufallsáhætta tengd kröfu eða kröfusafni, t.d. lánasafni, er lagskipt í hluta og umbreytt í framseljanleg verðbréf sem seld eru til fjárfesta. Hagnaður fjárfesta verður til af sjóðstreymi undirliggjandi lána og forgangsröðun áhættulaga ákvarðar dreifingu taps á líftíma verðbréfunar. Verðbréfun getur verið mikilvægt tæki fyrir fjármagns-, lausafjár- og áhættustýringu. Hér á landi má reikna með að helstu þátttakendur í viðskiptum með verðbréfaðar stöður verði eftirlitsskyldir aðilar á fjármálamarkaði, einkum fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög, rekstrarfélög verðbréfasjóða, rekstraraðilar sérhæfðra sjóða og, eftir atvikum, lífeyrissjóðir. Í STS-reglugerðinni eru settar fram kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar.

Forseti. Með frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarkskröfur gerðarinnar kveða á um að því frátöldu að lagt er til að lífeyrissjóðir falli undir gildissvið hennar ef þeir hyggjast fjárfesta í verðbréfuðum stöðum og þá beri þeim að gera áreiðanleikakönnun líkt og þeir væru stofnanafjárfestar í skilningi hennar. Ekki er unnt að útiloka að innleiðingin kalli á hækkun eftirlitsgjaldsins sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins, en óvíst er hvort verðbréfun verður umfangsmikil á Íslandi. Með traustu skipulagi og lagaumgjörð verður hún fýsilegri kostur en ella.

STS-reglugerðin gerir auknar kröfur um upplýsingagjöf, stöðlun og áhættuþátttöku þeirra sem koma að verðbréfun og getur því haft jákvæð áhrif á fjármálastöðugleika. Fyrirhuguð lögfesting mun tryggja stjórnvöldum heildstæðari yfirsýn en nú er möguleg yfir aðkomu innlendra aðila að slíkum viðskiptum á Evrópska efnahagssvæðinu. Með henni verða ekki lagðar nýjar skyldur á aðila á fjármálamarkaði nema þeir hyggi á verðbréfun á grundvelli fyrirhugaðra laga.

STS-reglugerðin, breytingar á henni og CRR-reglugerðinni voru teknar upp í EES-samninginn í júní 2024 og var stjórnskipulegum fyrirvara aflétt ári síðar. Því er lagt til að fyrirhuguð lög öðlist gildi þegar.

Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.