verðbréfun.
Ég vil þakka ráðherra fyrir andsvarið og vil fyrir hönd nefndarinnar þakka honum fyrir hólið. Þetta er auðvitað ein fyrsta spurningin sem við spyrjum okkur þegar svona mál koma inn til nefndarinnar, hvort um sé að ræða gullhúðun, þannig að við séum algjörlega meðvituð um hvað við séum að gera. Ég er nýr þingmaður og ég hef heyrt það allt of oft að hér hafi mál runnið í gegn án þess að þingmenn hafi kannski alltaf gert sér nægilega vel grein fyrir því hvað þau voru raunverulega að samþykkja. Við erum því mjög meðvituð um að spyrja þessara spurninga þegar þau koma inn til nefndarinnar. Ég vil líka taka undir það sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir fór yfir áðan um að við þurfum að skoða þetta með sektarheimildirnar aftur. Kannski er þetta bara einnar skoðunar virði og ég held að það sé hárrétt hjá hv. þingmanni og við munum gera það saman í efnahags- og viðskiptanefnd.