157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:43]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Þarna held ég að séum við alveg sammála, þetta er ekki einfalt. Það sem ég held að þyrfti að gera til að bæta þetta er í raun og veru að það eru eiginlega dómstólar sem koma þarna inn í. Þannig að ef einhver fremur brot sem er refsivert þá er sektin, tjónið væntanlega sem viðkomandi er talinn hafa valdið — og það er fallinn dómur um slíkt. Þá á það ekkert við innan sektarinnar frá Fjármálaeftirlitinu heldur er það bara tjón sem er dæmt af því að viðkomandi var valdur að þessu tjóni. Að því leyti væri hægt að segja að við gætum minnkað aðeins sektir Fjármálaeftirlitsins.

Fyrri spurningin var — vorum við ekki bara að ræða að þetta væri snúið? Ég bara tek undir það. Ég ætla að segja það aftur: Við sem munum eftir hrundómunum vitum að það er fín lína þarna á milli og ég er alveg viss um að einhver hafi fengið dóm fyrir eitthvað sem hann gerði af gáleysi þegar viðkomandi taldi sig vera að gera allt það besta. Þarna erum við sammála og ég held að nefndin þurfi að skoða hvort við finnum einhverja lausn á þessu.