starfstengdir eftirlaunasjóðir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir góða framsögu um þetta frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði. Það er alltaf pínu áhugavert þegar maður er að fjalla um mál sem eiga einhvern veginn ekki við á Íslandi af því að við erum ekki með neina starfstengda eftirlaunasjóði hér á landi. En gott og vel, þetta er hluti af EES-samningnum og okkur ber að innleiða þetta rétt þannig að að sjálfsögðu fór nefndin bara vel og faglega yfir þetta mál og sendi málið út til umsagnar og fékk eina umsögn frá Seðlabankanum og fór vel yfir hans ábendingar og tók mark á sumum þeirra. Við ræddum kannski helst ábendingu frá Seðlabankanum um hvort það væri Seðlabankinn sem ætti að veita starfsleyfi ef slíkur starfstengdur eftirlaunasjóður kæmi til Íslands, hver myndi veita starfsleyfið, hvort það væri ráðuneytið eða það væri Seðlabankinn. Eftir góða yfirferð nefndarinnar var það mat nefndarinnar að hafa það óbreytt eins og stendur í frumvarpinu, að ráðuneytið sjái um veitingu þess starfsleyfis.
Við lögðum til minni háttar orðalags- og tæknibreytingar og það gleður mig að sjá að þær rötuðu inn í frumvarpið frá ráðuneytinu. Það einfaldar okkur vinnuna sem er fram undan og ég vil bara enn og aftur þakka ráðuneytinu fyrir góða samvinnu í vor og ég á ekki von á öðru en að hið sama verði nú þegar málið gengur til nefndar, vonandi eftir þessa umræðu.