157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

101. mál
[17:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir einmitt aðkomu nefndarinnar. Ég ímynda mér að stundum geti verið erfitt að halda nefndinni við efnið þegar viðfangið varðar eins óverulega og raunar enga hagsmuni eins og í þessu tilfelli en tel þó að allt það sem nefndin gerði hafi verið til bóta eins og kemur fram í framlögðum frumvarpsdrögum og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs við nefndina við vinnslu þessa máls.